Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Síða 22
Samkvæmt barnaverndarlögunum frá 1932 átti barnaverndarnefnd
að dæma um það, hvaða heimili væru óhæf börnum, en ekki ráðuneyti,
valdsmaður eða fátækrastjórn. Barnaverndarnefnd átti að annast þá
barnavernd, sem fátækrastjórn og' skólanefndir kaupstaðanna höfðu
samkv. eldri lögum.
Með lögum nr. 76/1933 voru ýmsir viðaukar og breytingar gerðar
á lögunum um barnavernd frá 1932 Með bráðabirgðalögum nr. 22/1941
var kveðið sérstaklega á um eftirlit með ungmennum allt að 20 ára
aldri og settur á stofn sérstakur ungmennadómur til að dæma mál út
af lögbrotum og öðru misferli ungmenna. Bráðabirgðalög þessi voru
staðfest með lögum nr. 62/1942 um eftirlit með ungmennum, þó þann-
ig, að ungmennadómur dæmdi einungis mál þeirra, sem brotlegir urðu
fyrir 18 ára aldur. Samkvæmt þessum lögum átti að setja á stofn í
hverri sveit á landinu sérstaka dómstóla, skipaða héraðsdómara og
2 meðdómendum, til að fara með mál, ef ungmenni skyldi úrskurða í
hælisvist eða á heimili.
Lögnr. 29/1947.
Skorta þótti á, að lög nr. 43/1932 um barnavernd væru nægilega
rækileg. Ástæða þótti auk þess til að samræma þau ákvæðum laga nr.
62/1942 um eftirlit með ungmennum o.fl. Var því skipuð nefnd til að
semja nýtt frumvarp til laga um vernd barna og ungmenna. I þessari
nefnd áttu sæti Gizur Bergsteinsson, Símon Jóh. Ágústsson og Vil-
mundur Jónsson. Frumvarpið, sem var flutt í fyrsta skipti 1943, varð
að lögum nr. 29/1947. Þá höfðu barnaverndarnefndir starfað hér á
landi á annan áratug. Þessi lög höfðu að geyma margs konar ákvæði,
sem ekki voru í eldri lögum, og reynslan hafði sýnt, að nauðsynleg væru
til þess að barnaverndaryfirvöld gætu leyst störf sín sem best af
hendi.
Lög nr. 53/1966. Hlutverk barnaverndaryfirvalda.
Á árinu 1961 skipaði menntamálaráðherra nefnd manna til að end-
urskoða lögin um vernd barna og ungmenna. 1 nefndinni áttu sæti
Sveinbjörn Jónsson, þáverandi formaður barnaverndarráðs, Ármann
Snævarr, Guðmundur Vignir Jósefsson, séra Gunnar Árnason, Gunn-
laugur Þórðarson, Magnús Sigurðsson og Símon Jóh. Ágústsson. Nefnd
þessi samdi frumvarp, sem varð að lögum nr. 53/1966. Vel var vandað
til löggjafar þessarar, og eru lögin um margt ýtarlégri og fyllri en fyrri
lög, og leggja jafnframt aukin störf og skyldur á barnaverndarnefndir.
16