Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Page 31

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Page 31
Frá Lögmaimafélagi íslands AUKAAÐALFUNDUR OG GJALDSKRÁRMÁL Hinn 23. janúar s.l. var haldinn aukaaðalfundur L.M.F.Í. Var efni fund- arins hækkun gjaldskrár félagsins, svo og breyting á samþykktum þess vegna málagjalda Formaður félagsins Páll S. Pálsson hrl hafði framsögu. Ræddi hann um gjaldskrá félagsins og þá stöðu, sem nú væri komin upp vegna hækkunar á ýmsum gjöldum til ríkissjóðs og áhrifa mikilla verðhækkana að öðru leyti. Lagði hann fyrir fundinn svofellda tillögu frá stjórn félagsins: „Aukaaðalfundur L.M.F.Í. haldinn 23. janúar 1976 samþykkir að allar lág- markstölur og viðmiðunartölur gjaldskrárinnar hækki um 50% og felur stjórn félagsins að gefa út gjaldskrána þannig breytta.“ Tillagan var samþykkt samhljóða. Þá var samþykkt ný 17. gr. samþykkta félagsins, sem nú hljóðar svo: „Hver félagsmaður greiði gjald af hverju því máli, er hann þingfestir í héraði eða fyrir Hæstarétti. Af fé því, er þannig innheimtist, skulu 30% renna í félagssjóð, 20% í námssjóð félagsins.en 50% í sérstakan sjóð, sem aðalfundur ráðstafar til væntanlegs ábyrgðarsjóðs eða annarra þarfa félags- ins. Aðalfundur ákveður upphæð gjaldsins fyrir eitt ár í senn.“ Breyting þessi á samþykktum félagsins bíður enn samþykkis dómsmála- ráðuneytisins, er þetta er ritað. Hinn 10. febrúar barst félaginu erindi frá verðlagsstjóra þess efnis, að frestað yrði gildistöku hinnar nýju gjaldskrár félagsins til 20. mars, en að þeim tíma liðnum myndi embætti hans ekki gera neinar athugasemdir við það, að gjaldskrárhækkunin tæki þá gildi. Stjórn félagsins samþykkti að fallast á tilmæli verðlagsstjóra, og beindi hún því tii félagsmanna, að þeir beittu ekki hinni nýju gjaldskrá fyrr en 20. mars. Brynjólfur Kjartansson. AÐALFUNDUR 1976 Aðalfundur L.M.F.Í. var haldinn föstudaginn 26. mars s.l. að Hótel Loft- leiðum. Formaður félagsins Páll S. Pálsson hrl setti fundinn, en fundar- stjóri var kosinn Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl og kvaddi hann Jón Gunnar Zoéga hdl til fundarritarastarfa. 25

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.