Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Side 32

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1976, Side 32
Stjórn Lögmannafélags íslands 1975—1976, frá vinstri: Jón Finnsson hrl, Ragnar Aðalsteins- son, hrl. Páll S. Pálsson hrl (formaður), Brynjólfur Kjartansson hdl og Guðjón Steingrlmsson hrl. (Ljósm. Ljósmyndastofa Vigfúsar Sigurgeirssonar s/f). í upphafi skýrslu sinnar minntist formaður þeirra félaga og fyrrverandi félaga, sem látist höfðu frá síðasta aðalfundi, þeirra Þorvaldar Þórarinsson- ar, Áka Jakobssonar og Hermanns Jónassonar, en fundarmenn risu úr saet- um í virðingarskyni við hina látnu. í skýrslu formanns kom fram, að alls höfðu 38 stjórnarfundir verið haldnir á starfsárinu. Auk þess höfðu verið haldnir framhaldsaðalfundur, einn al- mennur félagsfundur og aukaaðalfundur. Kærumál voru sýnu færri en árinu áður, alls 22. Þá gat formaður þess, að það hefði á s.l. ári komið í hlut L.M.F.I. að taka á móti fulltrúum frá stjórnum lögmannafélaga hinna Norð- urlandanna og að hafa forstöðu fyrir móti þessara aðila hér í Reykjavík, en nánar er getið um fund þennan í 2. hefti TL 1975. Á fundinum voru fráfarandi formanni fluttar þakkir fyrir mikil störf í þágu félagsins. Skv. lögum þess getur formaður lengst setið í 3 ár, og hafði Páll S. Pálsson hrl gegnt formannsembættinu í þann tíma. Formaður félagsins var kjörinn Guðjón Steingrímsson hrl, en meðstjórn- endur til tveggja ára Gylfi Thorlacius hdl og Hjalti Steinþórsson hdl, í stað þeirra Guðjóns Steingrímssonar hrl og Ragnars Aðalsteinssonar hrl, sem gengu úr stjórninni skv. félagslögum Áfram sitja í stjórninni til næsta aðal- fundar Jón Finnsson hrl og Brynjólfur Kjartansson hdl. Varamenn voru kjörnir Jón E. Ragnarsson hrl, Jón Gunnar Zoéga hdl og Sigurður Georgsson hdl. Endurskoðendur voru kjörnir Ragnar Ólafsson hrl og Helgi V. Jónsson hdl. 26

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.