Tímarit lögfræðinga - 01.11.1976, Qupperneq 21
„Skipting eingarráða“; III. kaflinn varðar réttindi og skyldur íbúa í
fjölbýlishúsum; IV. kafli er um sambýlisháttu og í V. kafla eru ýmis
ákvæði. Lagafrumvarpinu fylgdu drög að tveimur reglugerðum, og
hafa þær nú verið settar, enda óhjákvæmilegt til að lögin nái tilgangi
sínum. Rgl.nr. 281/1976 er um ákvörðun eignarhluta í fjölbýlishúsum
j og rgl.nr. 280/1976 um samþykktir fyrir húsfélög. Er þar að finna
reglur, sem gilda eiga í fjölbýlishúsum, ef húsfélagið sjálft hefur ekki
sett sér samþykktir. Vei’ður nú vikið að hverjum kafla laganna fyrir
' sig.
II. 1. Gildissvið laganna.
Fjölbýlishús hér á landi eru næsta mismunandi að stærð og gerð,
og er því vandasamt að setja um þau sameiginlegar reglur.
Sum eru tvíbýlishús, önnur margra hæða íbúðablokkir. íbúðum er
stundum raðað hverri ofan á aðra, stundum hlið við hlið, og er þá talað
um raðhús. Eignaraðild getur verið með ýmsu móti, eins og áður segir,
og stundum er hluti húsanna notaður til annars en íbúðar. Þeir sem
skipuleggja íbúðasvæði og teikna fjölbýlishús hafa ekki létt laga-
smíðina, því að stundum er fyrirkomulag þannig, að sambýlishættir
sýnast ekki hafa verið hafðir í huga. — Um það mátti deila, hvort
lögin frá 1959 giltu um hvers konar fjölbýlishús, þó að sennilega hafi
svo verið. 1 nýju lögunum er leitast við að gera ótvírætt, að þau geti
átt við mismunandi tegundir fjölbýlishúsa. Beint eiga lögin þó ekki
við nema blokkir, þar sem íbúðirnar eru í eigu fleiri en eins aðila. Það
er sem sagt hin dæmigerða blokk, sem höfð er í huga.
Hrafn Bragason lauk embættisprófi frá laga-
deild háskólans 1965 og hefur verið borgar-
dómari í Reykjavík frá 1972. Framhaldsnám
hefur hann stundað í Osló og Bristol í réttar-
fari o.fl. Hann hefur unnið að samningu laga
um ýmis mál, m.a. neytendavernd, stöðu ríkis-
starfsmanna og fjölbýlishús. Þá hefur hann
unnið að félagsmálum háskólamanna og lög-
fræðinga. í grein þeirri, sem hér birtist og
byggð er á framsöguerindi á fundi í lögfræð-
ingafélaginu 20. apríl sl., er fjallað um lög nr.
59/1976 um fjölbýlishús, sagt frá helstu ný-
mælum og þau borin saman við lög nr. 19/1959.
115