Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Side 3
Svona eiga bilar að vera!
Glæsilegur Volvobíll vekur mikla hrifningu.
Volvo 343 heitir nýjasti bíllinn í Volvofjölskyldunni — þessi
bíll hefur vakiö verðskuldaða athygli fyrir sérstaka
aksturseiginleika, sparneytni og hagstætt verð.
Veltir hf. kynnti Volvo 343 á bílasýningu í Volvo-salnúm í
október 1976. Síðan hefur Volvo 343 verið einn
eftirspurðasti bíll hérlendis.
Allar upplýsingar um Volvo 343 eru til reiðu hjá söludeild
Veltis hf. að Suðurlandsbraut 16, Reykjavík.
Hveltir hf
Suðurlandsbraut 16*Sími 35200
rniAKir——
IÖ(.IIMIH\(,\
4. HEFTI 26. ÁRGANGUR DESEMBER 1976
NOKKUR ATRIÐI UM LÖGFRÆÐINGASTÉTTINA
Lögfræðingatal Agnars Kl. Jónssonar er nýkomið út, og er það 3. útgáfa
bókarinnar. Þar er að finna hinar margvíslegustu upplýsingar, og sá, sem
bókinni flettir, fræðist ekki aðeins um afmæli, skyldleika, hjónabönd, laga-
próf, störf og aukastörf, heldur og um lögfræðingastéttina í heild, fjölda
kandidata og um atvinnuskiptingu. Þessi almennu atriði er hollt að hugleiða
við og við.
f fyrsta lagi vekur fjölgunin í stéttinni athygli. I inngangi Lögfræðingatalsins
segir, að 625 lögfræðingar, sem taldir eru í ritinu, hafi verið á lífi, þegar inn-
gangurinn var skrifaður. Ekki er hann dagsettur, svo að tafsamt er að ganga
með vissu úr skugga um fjölda lögfræðinga nú í árslok 1976. Þó sýnist hann
vera 645 eða þar um bil. Verulegur hluti stéttarinnar er innan við miðjan
starfsaldur; sem næst 370 kandidatar eru útskrifaðir á síðustu 20 árum. Þeg-
ar þeir, sem nú fara á eftirlaun, luku lagaprófi eftir 1930, voru kandidatar fáir
á ári hverju. Segir í Lögfræðingatalinu, að 1931—1940 hafi útskrifast 76
menn. Síðustu 10 árin (1967—1976) hafa hins vegar 250 lögfræðingar lokið
embættisprófi frá Háskóla íslands. Fyrst 25 menn koma nú á vinnumarkaðinn
árlega en 7—8 komast samtímis á eftirlaunaaldur, er Ijóst, að mikinn fjölda
nýrra starfa þarf fyrir þennan hóp sérmenntaðs fólks.
i öðru lagi er athyglisvert að reyna að fá mynd af starfsskiptingu lögfræð-
inga og þróun hennar. Höfundur þessara lína hefur áður birt tvær greinar,
þar sem tilraun var gerð til að flokka lögfræðinga eftir störfum, og var fyrst
miðað við 1. júlí 1968, en síðan 1. september 1971. Nú hefur hann reynt að
athuga hóp ungra lögfræðinga, og var sá kostur tekinn að miða við þá, sem
lagaprófi luku frá Háskóla islands 1968—1972 að báðum árum meðtöldum. Á
þessum 5 árum útskrifuðust 112 kandidatar, og koma nokkrar tölur um þá og
úr eldri töflum fram hér á eftir:
141