Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Blaðsíða 7
BJÖRN HALLDÓRSSON
Björn Halldórsson lögfræðingur og bóndi að
Syðri-Brennihóli í Eyjafirði andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri 3. apríl síðast-
liðinn.
Hann fæddist að Ljósavatni í Þingeyjarsýslu
12. september 1905. Foreldrar hans voru hjón-
in Halldór Einarsson, bóndi að Skógum í
Fnjóskadal og Guðný Kristín Björnsdóttir frá
lllugastöðum í Fnjóskadal.
Björn fluttist ungur til Akureyrar með for-
eldrum sínum, sem bjuggu þá um skeið á býl-
inu Litlu-Hlíð ofan við bæinn. Síðan fluttist fjöl-
skyldan að Lágafelli í Mosfellssveit og þar á
eftir til Reykjavíkur en að lokum aftur til Akur-
eyrar.
Björn lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skólanum á Akureyri vorið 1922 og hóf síðan nám við Menntaskólann í
Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1925.
Að stúdentsprófi loknu hóf hann í fyrstu nám í norrænum fræðum við Há-
skóla íslands en hætti við það og innritaðist í lagadeild. Embættisprófi í lög-
fræði lauk hann 17. febrúar 1933.
Að lagaprófi loknu starfaði Björn um tíma á lögfræðiskrifstofu í Reykjavík,
en um mitt ár 1933 fluttist hann til Akureyrar og kom þar upp eigin lögfræði-
skrifstofu, sem hann starfrækti óslitið til ársins 1972. — Hann hlaut réttindi
sem héraðsdómslögmaður árið 1940 og varð fyrstur lögfræðinga á Akureyri
til að hljóta þau réttindi.
Auk lögmannsstarfa síns annaðist Björn lengst af lögtaksstörf fyrir Akur-
eyrarbæ sem fulltrúi bæjarfógeta.
Björn naut trausts og virðingar sem lögfræðingur, og voru honum falin
mörg og mikilvæg störf bæði af einstaklingum og opinberum aðilum. Hann
átti m.a. sæti í verðlagsdómi, og um langt skeið var hann skipaður prófdóm-
ari við málflutningspróraunir lögfræðinga. Þá var hann iðulega setudómari á
Akureyri og víðar í málum, sem hinir reglulegu dómarar viku sæti í.
Björn var mikill unnandi lista, var meðal stofnenda Tónlistarfélags Akur-
eyrar og lék sjálfur vel á orgel og píanó. Hann las mikið og oft fram á
nætur, einkum ef hann fann ekki annan tíma til lesturs.
Björn hafði nokkur afskipti af stjórnmálum og var m.a. í framboði fyrir
Þjóðvarnarflokkinn við bæjarstjórnarkosningar 1954 og Alþingiskosningar
1956. Einnig ritstýrði hann blaði sama flokks á þessum árum.
Ekki verður Björns svo minnst, að ekki sé fjallað um búskap hans, sem var
honum mikið áhugamál.
Árið 1955 fluttist Björn að Knarrarbergi í Öngulsstaðarhreppi, sem hann
keypti, og rak þar búskap samhliða lögfræðistörfum sínum til ársins 1959 að
145