Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Síða 8
hann seldi þá jörð. Keypti hann þá jörðina Syðra-Brennihól í Glæsibæjar-
hreppi og byggði þar upp hús öll. Meðan á byggingarframkvæmdum stóð, bjó
hann á Akureyri, en flutti á jörðina og hóf búskap þar árið 1961 og bjó þar til
æviloka.
Árið 1948 kvæntist Björn Elísabetu Maríu Sigfússon frá Manitoba, og lifir
hún mann sinn. Börn þeirra eru þrjú, Guðný við nám f Þýskalandi, Björn, sem
annast rekstur búsins ásamt móður sinni, og Guðmundur Karl, sem er við nám
í Kanada.
Er ég minnist Björns, kemur upp í hugann, hversu víðlesinn og fróður hann
var og hversu hispurslaus hann var í tali og framkomu. Ekki urðu þeir greindir
í sundur, bóndinn Björn Halldórsson og lögfræðingurinn Björn Halldórsson,
hvort sem hann var staddur í réttarsalnum eða á túninu. Líklega hefur hann
sjálfur ekki greint á milli þessara starfa sinna. Síðasti dómurinn, sem hann
samdi sem setudómari á Akureyri, endar á þessum orðum: „Dóm þennan
kvað upp Björn Halldórsson, bóndi á Syðra-Brennihóli.“
Freyr Ófeigsson.
Námsferð til Noregs
Á vegum Dómarafélags islands hefur um skeið verið unnið að því að skipu-
leggja námsferð til Noregs í þeim tilgangi að gefa félagsmönnum kost á að
kynnast réttarfari þar í landi. Norska dómsmálaráðuneytið hefur tekið að sér
að annast fyrirgreiöslu. Undirbúningi er nú svo langt komið, að verulegar
líkur eru á, að ferðin verði farin 6.—11. júní n.k. Nánari upplýsingar um ferða-
styrki, dagskrá o.fl. má fá, væntanlega áður en langt um líður, hjá undir-
búningsnefndinni. í henni eru Haraldur Henrýsson, Hrafn Bragason og Þór
Vilhjálmsson.
Þjóðréttarnámskeið
Sameinuðu þjóðirnar gangast fyrir námskeiði fyrir þjóðréttarfræðinga í
Genf 6.—24. júní n.k. Þátttakendur skulu vera á aldrinum 25—40 ára. Umsókn-
ir skal senda fyrir 7. apríl. Forseti lagadeildar Háskólans, prófessor Arnljótur
Björnsson, afhendir umsóknareyðublöð og veitir nánari upplýsingar.
146