Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Blaðsíða 12
fyrir sterku og gjörræðislegu ríkisvaldi. Nú eru tímarnir breyttir, dag-
blöð og aðrir fjölmiðlar móta almenningsálitið að verulegu leyti og eru
oft eins konar ríki í ríkinu. Ábyrgð þeirra er því mikil, ekki sízt ríkis-
fjölmiðla og ríkisstyrktra fjölmiðla. Jafnframt er borgurunum fyrir
miklu, að þetta ríka áhrifavald sé ekki misnotað gegn þeim, hvort sem
það stjórnast af sölumennsku, pólitískri meinfýsi eða öðrum ögn já-
kvæðari hvötum. Fréttakapphlaupið er orðið miklu hatrammara og
óvægnara en áður fyrr, og kallar það líka á aukna vernd.
2) Annað, sem kallar á frekari refsivernd, er hinn margháttaði
tæknibúnaður nútímans til upplýsingaöflunar, skoðunar og myndatöku.
Má þar nefna tæki til hlerunar (hlustunar), oft örsmá að gerð, svo að
þeim má leyna hvar sem er, t.d. í símtóli, í végg eða í fötum. Þá eru
komin til sögunnar geislatæki (laser), er geta m.a. numið hljóðöldur, er
lenda á gleri í gluggum. Ljósmyndatæknin er orðin slík, að hægt er að
ná nærmyndum úr fjarlægð með sterkum aðdráttarlinsum, og mynda
má í myrkri með infrarauðri lýsingu. Einnig má gera athuganir í
myrkri með öreindatækjum. Sum þessi tæki er auðvelt að útvega. Þau
eru meira að segja til sölu á almennum markaði, t.d. fullkomnar Ijós-
myndavélar og sjónaukar. Um önnur gilda takmarkanir lögum sam-
kvæmt, sbr. 1. nr. 30/1941, um fjarskipti. Skv. 2. gr. laganna hefur
ríkið einkarétt á að stofna og reka hvers konar fjarskipti með raf-
straum eða raföldum, þar á meðal ljósöldum, er ná til sendingar, flutn-
ings og móttöku skeyta, tals, tóna, mynda eða annarra slíkra merkja,
hvort heldur er eftir vírum, gegnum loft, sjó eða land eða á annan
hátt. Sömuleiðis hefur ríkið einkarétt á að flytja til landsins, selja,
leigja eða dreifa út á annan hátt, smíða, gera við, breyta eða setja
upp hvers konar fjarskiptavirki (tæki, taugar, búnað o.fl.). Ráðherra
getur þó veitt einstaklingum, félögum eða stofnunum leyfi um ákveð-
inn tíma til þeirrar starfsemi, er að ofan greinir, sbr. 3. gr. Ráðherra
getur enn fremur með reglugerð veitt almennt leyfi til tiltekinna minni
háttar framkvæmda, sem ekki er hætta á, að trufli rekstur fjarskipta-
virkja ríkisins, t.d. innanhússjónvarp. Hins vegar kunna einstakir
hlutar slíkra tækja að fást á almennum markaði. Færir tæknimenn
geta þá sett saman tæki, án þess að til komi leyfi eða eftirlit af hálfu
stjórnvalda. Erfitt er að takmarka innflutning og sölu slíkra hluta,
vegna þess að þeir eru notaðir í margs konar öðrum og löglegum til-
gangi. Loks hefur tölvutæknin ýmsar hættur í för með sér, m.a. fyrir
friðhelgi einkalífs og æruvernd. Raunhæfust er sennilega misnotkun
tölvuunninna upplýsinga, sem almenningi er skylt að láta ýmsum opin-
berum stofnunum í té. Misnotkun gæti átt sér stað af hálfu stofnun-
150