Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Side 30
FRUMVÖRP UM RÉTTARFARSBREYTINGAR
Hinn 12. nóvember s.L, á síðara degi aðalfundar Dómarafélags Is-
lands, var rætt um frumvarp það til lögréttulaga, sem lagt var fram
á Alþingi vorið 1976. Framsögumenn voru Þór Vilhjálmsson hæsta-
réttardómari og Stefán Már Stefánsson prófessor. Erindi þeirra fara
hér á eftir. Eftir að þau voru flutt, hafa verið sett lög nr. 107/1976
um breyting á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 108/1976 um
rannsóknarlögreglu ríkisins og nr. 109/1976 um breyting á lögum nr.
74/1972 um skipan dómsvalds. Frumvörp þau, sem erindin fjalla um,
lögréttufrumvarpið og frumvarp um breytingu á einkamálalögunum,
hafa hins vegar enn ekki verið lögð fyrir Alþingi, sem er í jólaleyfi, þeg-
ar þetta er ritað. Hins vegar hafa komið fram yfirlýsingar um, að það
verði gert.
Erindi Þórs Vilhjálmssonar
Virðulega samkoma.
Réttarfarsnefnd, sem skipuð var 1972, gekk sem kunnugt er frá 5
lagafrumvörpum á s.l. vetri, og voru þau lögð fyrir síðasta Alþingi. Þrjú
þeirra liggja fyrir Alþingi nú, og mér er sagt, að hin tvö muni lögð fram
í annað sinn bráðlega. Má vænta þess, að fyrrnefndu frumvörpin verði
að lögum, breytt eða óbreytt, áður en langt um líður. Eru þetta frum-
vörpin um rannsóknarlögreglu ríkisins, breytingar á lögunum um
meðferð opinberra mála og skipan dómsvalds í héraði og fleira. Þessi
3 frumvörp hafa allmikið vei'ið til umræðu á opinberum vettvangi, en
efni þeirra og umræðurnar um þau eru ekki viðfangsefni mitt í dag.
Mér er ætlað að fjalla um hin tvö frumvörpin, sem réttarfarsnefnd
samdi, fyrst og fremst frumvarp til lögréttulaga, en einnig um breyt-
ingar á einkamálalögunum. Þó að þau verði endurflutt á þessu þingi,
veit ég ekki, hvaða líkur eru á, að þau nái fram að ganga á næstunni.
168