Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Qupperneq 31
I.
Meginatriði frumvarpsins til lögréttulaga er að bæta skuli einu
dómstigi við í dómstólakerfi landsins. Er þar um að ræða tvær lög-
réttur, sem svo eru kallaðar í frumvarpinu, og á önnur að hafa aðset-
ur í Reykjavík en hin á Akureyri, en heimild að vera til að halda dóm-
þing á öðrum stöðum. Ekki er lagt til, að öll mál geti farið fyrir þau
þrjú dómstig, sem verða munu hér á landi, ef frumvarpið nær sam-
þykki. Er sú hugmynd lögð til grundvallar, að venjulega fari hvert
mál aðeins fyrir tvo dómstóla. Minni mál fyrir héraðsdóm fyrst og
síðan lögréttu, en stærri mál fyrir lögréttu fyrst og síðan Hæstarétt.
Þessi aðferð tíðkast í Danmörku, þar sem stærri mál fara ekki fyrir
héraðsdóm heldur beint til landsréttanna sem fyrsta dómsstigs, en
þessir dómstólar eru jafnframt áfrýjunardómstólar í málum, sem
höfðuð eru í héraði.
1 tillögum réttarfarsnefndar er lagt til, að í lögréttum landsins sitji
a.m.k. 15 embættisdómarar, 12 í Reykjavík og 3 á Akureyri, en forseti
fslands getur ákveðið eftir tillögu dómsmálaráðherra, að þeir skuli
vera fleiri. Yfirleitt eiga þrír af þessum dómurum að fjalla um hvert
mál, þó að svo þurfi ekki að vera á fyrstu stigum málsmeðferðar. Þetta
ákvæði um fjölskipaðan dóm er að sjálfsögðu meginbreyting frá því
sem nú er um fyrsta dómstig. Rökin eru ýmis, m.a. þau, að til lög-
réttanna komi fyrst og fremst hin stærri mál og að hin gamalkunna
regla um, að betur sjái augu en auga, skipti hér máli. Það er alltaf
ábyrgðarhluti að kveða upp dóma, en mest reynir á dómara í stórum
eða flóknum málum. Er þá gott að eiga stuðnings að vænta í umræð-
um um mál við aðra dómara, bæði til að allt það komi fram, sem ein-
hverju skiptir, og til að skoðanir geti mótast eftir sem rækilégasta
athugun. Sjálfur tel ég ekki vafa á, að þetta skipti mestu, en hitt sé
veigaminna, að fjölskipaður dómur er nokkru þyngri í vöfum en dóm-
ur, sem einn maður situr í. Þess er einnig að geta, að í lögréttufrum-
varpinu er gert ráð fyrir, að heimilt sé að kveðja til sérfróða með-
dómendur. Þegar það er gert, sitja 5 menn í dómi, 3 embættisdómarar
og tveir sérfróðir dómarar. Tekið er fram í frumvarpinu, að þetta
megi því aðeins gera, að deilt sé um staðreyndir, sem fram eru bornar
sem málsástæður. 1 þessu felst, að ekki má kveðja til sérfróða lög-
fræðinga vegna erfiðra lagaatriða.
Eitt þeirra atriða, sem réttarfarsnefnd ræddi mikið, þegar lögréttu-
lagafrumvarpið var í smíðum, var, hvaða mál skyldu ganga beint til
hinna nýj u dómstóla sem fyrsta dómstigs. Lagt er til, að engin breyt-
ing verði á starfsemi fógetaréttar, skiptaréttar og uppboðsréttar. Um
169