Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Blaðsíða 46
Frá
Lagaileild
lláskólans
EVRÓPURÁÐSTEFNA LAGADEILDA 1976
Fjórða Evrópuráðstefna lagadeilda var haldin í Strasbourg 6.—8. október
1976. Sat undirritaður ráðstefnuna fyrir hönd lagadeildar Háskóla íslands.
Ráðstefnan var á vegum Evrópuráðsins og voru sams konar ráðstefnur haldn-
ar 1968, 1971 og 1974. Um tvær hinar fyrstu vísast til greinar Þórs Vilhjálms-
sonar í Úlfljóti 1971, bls. 217—223. Á þriðju ráðstefnunni (1974) var rætt um
markmið og efni laganáms, kennsluaðferðir og mat á námsárangri. Hefur
ekki verið fjallað um hana á prenti. Fulltrúar lagadeildar þá voru Jónatan
Þórmundsson og Þór Vilhjálmsson, sem gerðu grein fyrir niðurstöðum ráð-
stefnunnar á fundi lagadeildar 29. apríl 1974. Einnig skýrði Jónatan Þór-
mundsson frá henni á fundi Orators 16. janúar 1975.
Forseti fjórðu Evrópuráðstefnu lagadeilda var kosinn prófessor A. C.
Chloros frá King’s College í Lundúnum. Þátttakendur voru um 150.
Viðfangsefni ráðstefnunnar, umræður og greinargerðir
Viðfangsefni fjórðu Evrópuráðstefnu lagadeilda var hlutverk samanburðar-
lögfræði í kennslu, rannsóknum og starfi að lagaendurskoðun. Þátttakendur
skiptust í þrjá umræðuhópa. Hópurinn, sem fulltrúi íslands var í, fjallaði um
þátt samanburðarlögfræði í kennslu til kandidatsprófs eða samsvarandi
prófs. Annar hópur ræddi um framlag samanburðarlögfræði á sviði rann-
sókna og kennslu eftir kandidatspróf. Þriðji hópurinn ræddi um gildi saman-
burðarlögfræðinnar við endurskoðun og endurbætur á löggjöf. Umræðu-
hóparnir störfuðu tvo fyrstu daga ráðstefnunnar, en þriðja og síðasta daginn
var allsherjarfundur, þar sem niðurstöður hópanna voru lagðar fram og rædd-
ar. i hverjum umræðuhópi voru tveir framsögumenn, sem lagt höfðu fram
skriflegar greinargerðir um umræðuefnið löngu áður en ráðstefnan hófst. í
fyrsta umræðuhópnum voru framsögumenn þeir prófessorarnir Schmidlin frá
háskólanum í Vínarborg og Tallon frá Parísarháskóla. í öðrum umræðuhópi
voru frummælendur prófessor Giugni frá Rómarháskóla og prófessor Keyman
frá háskólanum í Ankara. I þriðja hópnum höfðu framsögu prófessor Lando
í Kaupmannahöfn og lögmaðurinn Marsh, en hann á sæti í bresku laga-
nefndinni (Law Commission).
Hér á eftir verður minnst á nokkur atriði varðandi viðfangsefni fyrsta um-
ræðuhópsins, þ.e. samanburðarlögfræði i almennri kennslu.
Ekki er ástæða til að skilgreina nákvæmlega hugtakið samanburðarlög-
fræði, en það er notað í misvíðtækri merkingu. Almennt var þó aðeins fjall-
184