Tímarit lögfræðinga - 01.12.1976, Síða 51
Frá
Bandalagi
háskólamanna
ÞING SAMTAKA NORRÆNA HÁSKÓLAMANNA
Þing samtaka háskólamanna á NorSurlöndum var haldið í Reykjavík dag-
ana 1.—3. september s.l., en slík þing eru haldin á 3 ára fresti.
Þingið sátu 170 fulltrúar samtaka háskólamanna á Norðurlöndum. Þessi
samtök hafa innan sinna vébanda u.þ.b. hálfa milljón háskólamanna, sem
starfa ýmist hjá opinberum aðilum, einkaaðilum eða sjálfstætt.
Á þinginu voru flutt framsöguerindi um eftirtalin efni: Hlutverk samtaka
háskólamanna í þjóðfélaginu, sérstaklega með tilliti til launastefnu (Osborne
Bartley, SACO/SR, Svíþjóð). Vinnumarkaðsmál (Ragnhildur Helgadóttir, BHM,
ísland og Eskil Hohwy, AC, Danmörk) og Atvinnulýðræði (Ö. J. Aksnes, AF,
Noregur og Olle Hessleborn, SACO/SR, Svíþjóð). Á eftir framsöguerindun-
um voru hringborðsumræður og síðan almennar umræður.
í sameiginlegri yfirlýsingu, sem formenn bandalaganna gáfu í lok þingsins,
segir m.a.:
„Ákveðið hefur verið að vinna að mótun sameiginlegrar afstöðu til at-
vinnulýðræðis og starfsaðstöðu. Ennfremur er ætlunin að vinna sameigin-
lega að athugunum á aðstöðu háskólamanna til sjálfstæðrar starfsemi. Nokkr-
ar breytingar eru að gerast í þeim efnum, sem geta leitt til þrengri að-
stöðu sjálfstætt starfandi manna. Það er skoðun formannanna, að jafnrétti
kynjanna sé mikilvægt mál og sameiginlegt verkefni samtakanna.
Við höfum hér í Reykjavík náð samkomulagi um sameiginlega tillögu um,
hver skuli vera grundvöllur menntunar mennta- og framhaldsskólakenn-
ara. Þessi tillaga felur í sér þá eindregnu skoðun, að menntun þessara kenn-
ara verði á komandi árum að vera tengd rannsóknastarfsemi í viðkomandi
greinum og í tengslum við aðra háskólamenntun. Við höfum einnig rætt um
tillögu, sem fram kom í Norðurlandaráði um norræna stofnun, sem fjaliaði
um málefni vinnumarkaðarins. Afstaða okkar til þessarar tillögu er jákvæð,
því að háskólamenntaðir menn á Norðurlöndum hafa sums staðar átt við at-
vinnuleysi að stríða, og ætla má, að hér geti verið um vaxandi vandamál
að ræða.“
í sambandi við þingið var haldinn árlegur fundur Nordisk akademikerrád
hinn 31. ágúst s.l. Þar var m.a. fjallað um skipulag samstarfs háskólamanna
á Norðurlöndum. Var ákveðið, að á næsta starfsári yrði sérstaklega fjallað
um atvinnulýðræði og vandamál sjálfstætt starfandi hskólamanna, og mun
sænska bandalagið SACO/SR boða til starfsmannafundar um þau efni á
starfsárinu.
Guðríður Þorsteinsdóttir.
189