Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Page 11
saknæmra athafna sjálfstæðs verktaka, ef sérstaklega stendur á.
(Nordenson, Bengtsson og Strömbáck, bls. 79).
Með lögfestingu skaðabótalaganna eru ekki felldar niður bótaregl-
ur, sem eru í sérstökum lögum, t.d. siglingalögum eða loftferðalögum.
Þetta er tekið fram í 4-2 norsku laganna og 1:1 SkL.
Skaðabótalögin varða fyrst og fremst skaðabætur utan samninga,
en um gildissvið þeirra um skaðabætur innan samninga eru ákvæði í
4-1 gr. norsku laganna og 1:1 hinna sænsku laga. Verður lítillega að
þeim vikið í 3.10 og 4.2 hér á eftir.
3. NORSKU SKAÐABÓTALÖGIN FRÁ 1969
3.1. Yfirlit yfir efni laganna
Lögin skiptast í 5 kafla. Fjallar 1. kafli um skaðabótaábyrgð
barna, ábyrgð foreldra og annarra á skaðaverkum barna, ábyrgð geð-
veikra manna og ábyrgð á neyðarréttarathöfnum. Annar kafli laganna
hefur að geyma reglur um vinnuveitandaábyrgð, þ. á m. heimild til
að lækka skaðabætur úr hendi atvinnurekanda. Þá er í kaflanum ákvæði
um ábyrgð launþega á skaðaverkum í starfi og lækkunarheimild vegna
slíkrar ábyrðar. 1 3. kafla eru reglur um bætur fyrir tjón vegna slysa
á mönnum, þ. á m. dánarbætur, bætur fyrir ýmis refsiverð brot gegn
persónu manna, ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Einnig
er í kaflanum regla, sem fellir að mestu niður endurkröfurétt almanna-
trygginga og lífeyrissjóða á hendur skaðabótaskyldum aðila. Loks er
í 3. kafla rúm heimild til að lækka skaðabætur fyrir líkamstjón eftir
sanngirnissjónarmiðum. 1 4. kafla ségir m.a., að reglur laganna skerði
eigi að neinu leyti ábyrgð þá, sem hvíli á réttaraðila skv. samningi.
Þar eru og ákvæði um samband skaðabótalaganna og annarrar lög-
gjafar. í 5. kafla eru gildistökuákvæði o.fl.
3.2. Ábyrgð barna og unglinga
1 1-1 gr. laganna segir, að börnum og unglingum undir 18 ára aldri
sé skylt að bæta tjón það, sem þau valda af ásetningi eða gáleysi, að
svo miklu leyti, sem sanngjarnt verður talið með hliðsjón af aldri,
þroska, hegðuninni, sem tjóni olli („utvist adferd“), efnahag og öðrum
atvikum.
Méginreglan er sú, að börn og unglingar bera ábyrgð á saknæmri
hegðun sinni, en við er hnýtt mjög rúmri matsreglu, sem veitir heimild
til lækkunar skaðabóta, þégar nánar tiltekin skilyrði eru fyrir hendi.
173