Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Side 17
4.3.2. Ábyrgð barna og unglinga
1 2:2 SkL er ákvæði, sem efnislega er samhljóða 1-1 gr. í norsku
skaðabótalögunum, að tveim atriðum undanskildum. Sænska lagaákvæð-
ið nær aðeins til líkams- eða eignatjóns, en í n. skbl. er engin slík tak-
mörkun gerð. í 2:2 SkL ségir, að m.a. skuli við mat á bótum taka tillit
til ábyrgðartryggingar og annarra fjárhagsástæðna, en 1-1 gr. n. skbl.
talar aðeins um efnahag.
4.3.3. Ábyrgð geðveikra manna
Ákvæði 2:3 SkL um bótaskyldu geðveikra eða andlega vanþrosk-
aðra manna svara til reglu 2:2 um ábyrgð barna, að öðru leyti en því,
að í stað aldurs og þroska í 2:2 skal skv. 2:3 taka tillit til andlegs
ástands tjónvalds. Auk þess segir í 2:3 SkL, að sama regla giidi um
mann, sem veldur tjóni (á mönnum eða munum) í annars konar annar-
legu sálarástandi, enda sé ekki um að ræða skammvinnt ástand sem
tjónvaldi verði sjálfum gefin sök á.
4.3.4. Ábyrgð á hreinu fjártjóni
Sá, sem veldur hreinu fjártjóni með refsiverðu atferli, skal bæta
tjónið eftir reglum þeim, sem gilda skv. 2:1 til 2:3 um líkams- og eigna-
tjón, 2:4 SkL.
4.3.5. Ábyrgð á tjóni sökum vanrækslu á að koma upp um
refsiverðan verknað
1 2:5 SkL er sérstök régla um ábyrgð á tjóni, sem verður vegna
vanrækslu á að koma upp um refsiverða háttsemi, en ekki er ástæða
til að ræða hana frekar.
4.4. Ábyrgð opinberra aðila og annarra atvinnurekenda
Þriðji kafli laganna heitir skaðabótaábyrgð vinnuveitenda og hins
opinbera. Sá, sem hefur launþega í þjónustu sinni, skal bæta líkams-
eða munatjón, sem launþeginn veldur af mistökum eða vanrækslu í starf-
inu. Sama gildir, þegar launþegi veldur hreinu fjártjóni með refsiverð-
um hætti í starfi, 3:1 SkL. Eftir 6:4 SkL jafngilda ýmsir nánar til-
greindir aðilar launþegum, svo sem menn, er gegna herskyldu og skóla-
nemendur og vistmenn á hælum, ef þeir inna af hendi störf, sem í eðli
sínu eru sambærileg störfum launþega.
3:1 SkL felur í sér almenna grundvallarreglu um atvinnurekanda-
ábyrgð, en í 2. mgr. lagaákvæðis þessa segir, að um skaðabótaábyrgð
ríkis eða sveitarfélága vegna opinberrar sýslu (,,myndighetsutövning“)
179