Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Page 33
Frá
Lögfræðingiifélagi
íslands
FUNDIR í LÖGFRÆÐINGAFÉLAG! ÍSLANDS
Hér á eftir verður getið nokkurra funda í Lögfræðingafélagi íslands, sem
ekki hefur áður verið greint frá í Tímariti lögfræðinga.
Ættleiðing
Þann 19. janúar 1977 var haldinn almennur félagsfundur í Lögbergi, þar
sem prófessor Lúðvík Ingvarsson flutti erindi, sem hann nefndi ,,Ættleiðing,
á hún rétt á sér í íslensku samfélagi?“ Erindi Lúðvíks varð tilefni nokkurra
umræðna með fundarmönnum, en megin niðurstaða hans um efnið var sú,
að ættleiðingin ætti ekki rétt á sér. Þátt í þeim umræðum tóku: Garðar Gísla-
son borgardómari, Ólöf Pétursdóttir fulltrúi og Ármann Snævarr hæstaréttar-
dómari auk frummælandans. Fund þennan sóttu um 40 lögfræðingar.
Upplýsingaskylda stjórnvalda
Niels Eilschou Holm skrifstofustjóri í lagadeild dómsmálaráðuneytis Dana
flutti erindi 30. mars um „almenna upplýsingaskyldu stjórnvalda." Gerði hann
grein fyrir dönskum réttarreglum á þessu sviði. Til fundarins var boðið félög-
um í Blaðamannafélagi Islands. Við almennar umræður um fundarefnið tóku
eftirtaldir fundarmenn til máls: Bragi Sigurðsson blaðamaður og lögfræðingur,
Einar Karl Haraldsson blaðamaður, prófessor Sigurður Líndal, Gunnlaugur
Þórðarson hrl. og Margrét Bjarnason fréttamaður. Fundurinn var haldinn í
Lögbergi og sóttu hann um 30 manns.
Rangur framburður
Prófessor Jónatan Þórmundsson flutti á fundi 28. apríl erindi um efnið
„rangur framburður“. Þátt í almennum umræðum tóku auk frummælandans þeir
Gunnlaugur Þórðarson hrl., Hrafn Bragason borgardómari og Már Pétursson
héraðsdómari. Fundur þessi var haldinn á sama fundarstað og hinir fyrrnefndu
og var sóttur af 56 lögfræðingum og laganemum.
Uppboð
Hádegisverðarfundur var haldinn á Hótel Sögu 25. maí. Þar flutti prófessor
Stefán Már Stefánsson erindi, sem hann nefndi: „Um uppboð. Uppboðsheim-
ildir og fleira.“ Um 90 lögfræðingar og laganemar sóttu fundinn. Fyrirspurnir
til frummælandans báru fram þeir Hafsteinn Sigurðsson hrl., Ragnar Aðal-
steinsson hrl., Sigurður Briem fulltrúi og Leó Löve fulltrúi.
195