Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Side 39
6. Búferlaf lutningar.
6.1. Starfsmaður, sem er aðili að samningi þessum, hefur starfað í þjónustu
ríkisins í 5 ár og er síðan skipaður til starfs, sem gerir kröfu til að hann
flytji milli lögsagnarumdæma, á rétt á greiðslu fargjalda sinna og fjöl-
skyldu sinnar og hæfilegs flutningskostnaðar búslóðar úr ríkissjóði.
Réttur til slíkrar greiðslu vaknar að nýju 5 árum eftir að síðast var flutt.
6.2. Starfsaldursskilyrði skv. 6.1. tekur þó eigi til dómarafulltrúa, enda sé
flutt eigi skemmri vegalengd en 100 km.
7. Gildistími.
7.1. Um gildistíma og uppsögn þessa dóms fer skv. ákvæðum laga nr.
46/1973, sbr. lög nr. 23/1977.
NORRÆNT LÖGFRÆÐINGAÞING 1978
28. norræna lögfræðingaþingið verður haldið í Kaupmannahöfn dagana
23.—25. ágúst n.k. Á þinginu verða rædd ýmis markverð lögfræðileg verkefni,
svo sem títt er á slíkum þingum, en þau hafa verið haldin reglulega þriðja hvert
ár síðan 1872 að undanskildum styrjaldarárunum. Síðasta þing var haldið í
Reykjavík í ágúst 1975. Meðal umræðuefna þessu sinni eru lögfræðileg álita-
mál, sem tengjast jafnstöðu karla og kvenna, þar sem aðalframsögumaður
verður frú Guðrún Erlendsdóttir, lektor, og vandamál í sambandi við verð-
bólgu og samninga, þar sem annar framsögumaður er Benedikt Sigurjóns-
son, hæstaréttardómari. Rætt verður einnig m.a. um stöðu og verkefni sak-
sóknara og verjanda í oþinberum málum, um vernd einkalífs og tölvur, um
hlut refsivistar meðal viðurlaga í refsirétti framtíðarinnar, um skaðabætur og
tryggingar og um efnið: réttaröryggi barna, sem rætt verður í sameinuðu
þingi. Meðal framsögumanna eru margir mjög kunnir lögfræðingar á Norður-
löndum.
Tilkynningar um þátttöku ísl. lögfræðinga skulu hafa borist fulltrúa stjórnar
íslandsdeildar norrænu lögfræðingaþinganna, Birni Helgasyni, hæstaréttar-
ritara, eigi síðar en 30. mars n.k. Stjórn deildarinnar skipa nú: Dr. Ármann
Snævarr, forseti Hæstaréttar, Auður Þorbergsdóttir, borgardómari, Baldur
Möller, ráðuneytisstjóri, Benedikt Blöndal, hæstaréttarlögmaður, Björn Svein-
björnsson, hæstaréttardómari, Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hæstaréttarlög-
maður, Hrafn Bragason, borgardómari, Þorsteinn Geirsson, deildarstjóri og
Þór Vilhjálmsson, hæstaréttardómari. Er það von stjórnarinnar, að margir ísl.
lögfræðingar muni taka þátt í norræna lögfræðingaþinginu 1978.
Ármann Snævarr.
201