Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Side 40
Frá
Lögmaimafélagi
íslands
NÁMSSJÓÐUR LÖGMANNAFELAGS ÍSLANDS
Frá Lögfræðingafélagi Islands
í 2. hefti 25. árgangs Tímarits lögfræðinga — október 1975 — var gerð
grein fyrir stofnun Námssjóðs Lögmannafélags íslands og starfsemi hans
fyrstu árin, en sjóðurinn var stofnaður 1970. Slðan þessi greinargerð birtist
er þetta helst fréttnæmt af starfsemi sjóðsins að segja:
Stjórn sjóðsins skipa sem aðalmenn Guðmundur Ingvi Sigurðsson formað-
ur, Árni Guðjónsson og Sigurður Georgsson og sem varamenn Hákon Árna-
son, Skúli J. Pálmason og Benedikt Guðbjartsson. Árin 1976 og 1977 hélt
stjórnin sex fundi og fjallaði um 11 erindi og málefni. Þessir hlutu styrki og
aðra blessun sjóðsins:
1. Tímarit lögfræðinga kr. 300.000
2. Tímaritið Úlfljótur ..................................... — 300.000
3. Sigurður Georgsson, lögmaður — 100.000
4. Stefán Pálsson, lögmaður — 100.000
5. Stefán Már Stefánsson, prófessor — 175.000
6. Björn Þ. Guðmundsson, borgardómari — 200.000
7. Útgáfukostnaður ritsins:
Dómar um bótaábyrgð hins opinbera — 358.888
Samtals kr. 1.533.888
Styrkurinn til lögfræðitímaritanna var veittur til stuðnings og eflingar þeim.
Sigurði Georgssyni og Stefáni Pálssyni var veittur styrkurinn til farar til New
York til að kynna sér rekstur á lögmannsstofum. Skýrsla tvímenninganna
um förina var birt í Tímariti lögfræðinga, 3. hefti 27. árgangs, nóvember 1977.
Styrkurinn til Stefáns Más Stefánssonar var veittur honum til að gefa út
kennslu- og fræðslurit um nauðungaruppboð.
Á fundi sínum 16. júní 1977 gerði stjórn námssjóðsins svofellda ályktun:
,,Árið 1973 kom út bókin Lögbókin þín og árið 1975 Formálabókin þín, hvoru
tveggja eftir Björn Þ. Guðmundsson borgardómara. Báðar eru bækur þessar
miklar að vöxtum og gildar að gæðum. Að baki þeirra liggur mikil vinna:
Gagnaöflun, heimildakönnun, úrvinnsla, allt nákvæmnivinna. í formála fyrir
bókinni Lögbókin þín segir höfundur, að bókin sé að mestu skrifuð „á þeim
vökustundum, sem eftir verða þegar lokið er önn aðalstarfs ......“ Báðar
bækurnar hafa geysimikið hagnýtt gildi fyrir lögmenn enda mikið notaðar.
Þær létta lögmönnum gönguna um myrkviði laga og réttar, auðvelda skjala-
202