Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Qupperneq 41
gerð og veita tryggingu fyrir, að ekkert gleymist. Það er því síst að undra, að
lögmenn, a.m.k. á stundum, renni þakklátum huga til höfundar, er þeir hand-
fjatla bækur hans í leit að fróðleik og fyrirmynd. Með skírskotun til 4. mgr. 7.
gr. skipulagsskrár námssjóðsins samþykkir stjórnin, að lögmenn sýni þakklæti
sitt í verki, þótt í litlu sé, með því að námssjóðurinn verðlauni höfund framan-
greindra bóka með peningafjárhæð, kr. 200.000 — tvöhundruðþúsundkrón-
ur —“.
Loks er þess að geta, að á árinu 1977 gaf námssjóðurinn út rit Arnljóts
Björnssonar prófessors, Dómar um bótaábyrgð hins opinbera. Kostnaður við
þá útgáfu nam samtals kr. 358.888, eins og áður greinir. Vegna seldra bóka
árið 1977 hefir sjóðurinn fengið upp í útgáfukostnaðinn kr. 168.300.
Sjóðnum var aldrei ætlað að safna fé til varðveislu og ávöxtunar. Stjórn
sjóðsins á að vera örveitul og óspör á fé sjóðsins, enda gera reglur sjóðsins
ráð fyrir því, að ráðstafað sé ár hvert allt að 90% af tekjum sjóðsins árið
á undan.
GuSm. lngvi SigurSsson.
203