Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 4
dómsmál vegna meðferðar stjórnvalda á gjaldeyrismálum næstum óþekkt.
Almannatryggingalögin eru með sama marki brennd. Breytingar sem á þeim
eru gerðar árlega eða oft á ári miða ekki að því að tryggja réttaröryggi á
þessu sviði. Mál um kröfur, sem upp koma vegna laganna, munu afar sjaldan
koma fyrir dómstóla. Ekki er þess heldur að vænta, að mikið verði um dóms-
mál út af þeirri margvíslegu efnahagslöggjöf sem sett var á Alþingi á síð-
asta vetri.
Sé það virt, sem hér hefur verið drepið á, sýnist Alþingi heldur áhugalítið
um þessar mundir um réttarbætur á sviði lögfræði og skilningslítið á gildi
þess að réttaröryggi sé tryggt í stjórnsýslunni. Hvorugt er gott. Þörf er marg-
víslegra breytinga á þessu sviði þjóðlífsins og langvarandi sinnuleysi að því
er varðar réttaröryggi að þessu leyti getur ekki einungis leitt til vanda fyrir
þá, sem þar eiga undir högg að sækja, heldur og sljóvgað tilfinningu manna
fyrir hlutverki dómgæslunnar á öðrum sviðum. Vissulega er einnig hugsan-
legt, að það verði til að rýra áhrif Alþingis er fram í sækir, ef réttarbætur
dragast úr hófi, þó að Ijóst sé, að þeirra sé þörf.
Þór Vilhjálmsson.
50