Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 40

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 40
opinberra mála, sem nú liggur fyrir Alþingi. Hér er átt við lagafrumvarp Finns Torfa Stefánssonar á þskj. nr. 40. Frumvarpsgreinar voru svohljóðandi: 1. gr. Við 61. gr. laga nr. 74 1974 bætist ný málsgrein svohljóðandi: Handtekinn maður á rétt á skipuðum réttargæslumanni þegar eftir eftir handtöku og ber þeim, er handtöku framkvæmir, að skýra honum frá þessum rétti. Réttargæslumaður ber skyldur og réttindi sem verj- andi eftir 86. gr. Handteknum manni er heimilt eftir handtöku að hafa samband við ættingja eða aðra vandamenn, nema sérstök ástæða sé til að ætla að það muni torvelda rannsókn málsins. 2. gr. 1. tölul. 67. gr. laga nr. 74 1974 falli niður. 3. gr. 3. málsliður 1. málsgr. 86. gr. laga nr. 74 1974 orðist svo: Verjanda er heimilt að tala við sökunaut einslega, þegar hann er í gæslu, nema dómari hafi sérstakt tilefni til að telja hættu á, að rann- sókn torveldist fyrir það. 1 4. málslið sömu málsgreinar falli niður orðin: „enda þyki dómara það hættulaust vegna rannsóknar málsins“. 4. gr. Lög þessi taka þegar gildi. Frumvarpið sætti þeirri bx-eytingu á Alþingi, að 2. gr. þess var felld burt, en síðan var það samþykkt og lögin gefin út sem lög nr. 53/1979 um breytingu á lögum nr. 74 1974 um meðfei'ð opinbeiTa rnála. Að mínu mati er meginefni frumvai’psins í 2. gr. Þar er gert ráð fyrir afnámi 1. tölul. 67. gr. laganna. Eins og fi’am er komið áður, er þetta sú gæsluvai’ðhaldsheimild, sem aðallega og næri’i eingöngu er notuð. Yi’ði þessi tillaga samþykkt, mætti alveg eins leggja niður gæsluvai’ðhald. Viðfangsefni lögreglu og sakamáladómstóla yi’ði þá í fi’amtíðinni að fást við „litlu karlana“, en hinir stærri og harðsvíraðri yrðu nánast friðhelgir og ósnertanlegir. Um 1. gr. fi’v. er svo sem ekkei’t nema gott að segja. Síðasti máls- liður er nánast í sami’æmi við það sem tíðkast hefur án lagaskyldu, þ.e.a.s. tilkynningar til vandamanna. 1. málsliður gæti valdið nokki’- um framkvæmdaörðugleikum, nema meiningin sé að taka upp fastar vaktir í’éttargæslumanna, m.a. á lögreglustöðvum landsins. Slíkt er framkvæmanlegt og gert annars staðar. Að því er 3. gr. frv. snertii’, er hér nánast um orðalags- og áherslu- mun að ræða og tel ég nýja oi’ðalagið ekki ganga neitt lengra en rétt- arfi’amkvæmdin hefur verið og ekki bein ástæða til að amast við því. 86

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.