Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Qupperneq 23
gegn misnotkun á meðferð upplýsinga í tölvum. VI. kafli frumvarps-
ins fjallar um heimild skráðra aðila til að fá vitneskju um upplýsingar,
sem skráðar hafa verið um þá sjálfa. Meginreglan er, að menn eigi
rétt á þessu, enda má heita, að slíkt séu almenn mannréttindi. Þó
gildir sérregla um aðgang að upplýsingum í sjúkragögnum, en þær
upplýsingar þurfa að fara um hendur lækna, þar sem ekki þykir tækt,
að menn fái að vita hvaðeina sem skráð er í sjúkraálum t. d. að
viðkomandi sé haldinn banvænum sjúkdómi. Þá er einnig gerður fyrir-
vari um upplýsingar, þar sem ótvíræðir almenningshagsmunir eða
aðrir veigamiklir einkahagsmunir geta valdið því að ekki þyki fært
að veita aðila upplýsingar, m. a. vegna einkahagsmuna beiðanda sjálfs.
í greinargerð með frumvarpinu kemur fram, að sérstök þörf þyki á
ákvæðum um aðgang málsaðila, þar sem enn njóti ekki við almennr-
ar löggjafar um aðgang almennings að opinberum gögnum hjá stjórn-
völdum.
Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir, að almenningur fái ekki að-
gang að skrám, sem eingöngu er stofnað til í þágu tölfræðilegra upp-
lýsinga, og einnig má undanþiggja fleiri skrár frá aðgangi málsaðila,
eins og t. d. skrár hjá lögregluyfirvöldum vegna rannsóknar brota.
Svonefndri tölvunefnd er ætlað að vera úrlausnaraðili um ágreinings-
efni, sem kunna að rísa, og einnig er ráðgert, að þeir úrskui'ðir verði
fullnaðarúrskurðir.
4. Lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
I 5. gr. laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
er kveðið svo á, að umsækjendur um lausa stöðu, svo og viðurkennd
félög opinberra starfsmanna, skuli eiga kost á að fá vitneskju um
það, hverjir sótt hafa.
5. Lög um stofnun og slit hjúskapar.
Með lögum nr. 60/1972 um stofnun og slit hjúskapar var fyrir-
hugað, að hjúskaparmál yrðu rekin í ríkari mæli en áður fyrir dóm-
stólum, eins og tíðkast hjá hinum Norðurlandaþjóðunum samkvæmt
hinum samnorrænu lögum, en sú hefur reyndin ekki orðið. Lögskiln-
aðarleyfi eru nú sem fyrr veitt í dómsmálaráðuneytinu. 7. kafli hjú-
skaparlaganna fjallar einungis um réttarfarsreglur í hjúskaparmál-
um fyrir dómstólum, og fáar reglur er að finna um meðferð í hjú-
skaparmálum hjá dómsmálaráðuneytinu. Ráðuneytið hefur því sjálft
mótað reglur, sem málsmeðferðin byggist á. I reynd er aðgangur að-
ila að skjölum máls viðurkenndur á sama hátt og fyrir dómstólum,
145