Tímarit lögfræðinga - 01.09.1981, Side 4
Curt Olsson jur. dr., forseti Hæstaréttar Finnlands:
FINNSKT RÉTTARFAR
Breytingar og breytingatillögur
Fyrirlestur á fundi í Dómarafélagi íslands 13. nóv. 1980
1) 1 upphafi máls míns þakka eg boð til fundar í Dómarafélagi Is-
lands. Það er mér heiður og ánægja að eiga þess kost að halda fyrir-
lestur, þar sem allir dómarar á Islandi koma saman.
1 fyrirlestri mínum mun eg að mestu fjalla um efni, sem hafa raun-
hæfa þýðingu, en ekki ræða söguleg atriði nema nauðsyn krefji. Eg
lýsti hinni sögulegu þróun í fyrirlestri í Norræna húsinu fyrir nokkr-
um dögum. Fyrst mun ég stuttlega lýsa meginatriðum finnsks réttar-
fars, eins og það er nú, en að því búnu beina athyglinni að réttarbót-
um, sem nýlega tóku gildi og varða áfrýjun til Hæstaréttar, og loks ræða
fyrirætlanir um breytingar á hinum almennu héraðsdómstólum í
iFinnlandi.
2) Hin almennu dómstig í Finnlandi eru þrjú: undirréttur, hof-
réttur og Hæstiréttur. Undirréttirnir eru tvenns konar, héraðs-
réttur í strjálbýli og venjulega ráðstofuréttur í bæjunum. Þeir eru ekki
skipaðir með sama hætti. I hinum fyrri, sem eru 144 að tölu, sitja
héraðshöfðingi og nefnd. Héraðshöfðinginn er dómari að aðalstarfi,
skipaður af Hæstarétti. Nefndarmennirnir eru leikmenn, 5—7 tals-
ins, sem sveitarstjórn velur til 4 ára. Þeir hafa ekki atkvæðisrétt hver
um sig, en geta borið dómsformanninn, héraðshöfðingj ann, atkvæðum,
ef þeir eru allir á einu máli. Hins vegar eru dómþing ráðstofuréttanna,
sem starfa í 35 bæjum, háð af 3 dómurum, sem hafa jafnan atkvæðis-
rétt. Formaður ráðstofuréttarins er alltaf lögfræðingur og kallaður
borgmeistari. Að jafnaði eru dómararnir í ráðstofuréttinum lögfræð-
ingar, þótt það komi fyrir í litlum bæjum, að ráðsmenn séu það ekki.
Borgmeistarinn er skipaður af Hæstarétti að fengnum tillögum bæjar-
fulltrúa, en bæjarfulltrúarnir velja ráðsmennina.
54