Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Síða 18
sé einungis ætlað að gilda um flutning innanlands. Um flutning farms
með ökutæki, sem fer hluta leiðar á skipi innanlands, er fjallað í 8.
gr. LSL.
Eigi kemur heldur beint fram í texta LSL, hvort þau taka til samn-
inga um flutning vörusendinga innan sama sveitarfélags. 1 athuga-
semdum við 1. gr. frv. er að þessu vikið. Segir þar, að lögunum sé
fyi-st og fremst ætlað að gilda um þá skipulagsbundnu vöruflutninga,
sem fara fram á milli landshluta eða byggðarlaga, en ekki um vöru-
sendingar innan sama bæjarfélags eða kaupstaðar. Skv. þessu og því
skilyrði 1. gr. LSL, að vöruflytjandi annist „að jafnaði flutning fyrir
fleiri en einn aðila í sömu ferð“ taka lögin ekki til starfsemi, sem
sendi- eða vörubifreiðarstjórar eða afgreiðslustöðvar þeirra hafa al-
mennt með höndum. LSL yrði því t.d. ekki beitt um tilvik eins og
það, sem dæmt var um í Hrd. 1934, 858.
Samkvæmt síðastnefndu skilyrði 1. gr. LSL gilda lögin ekki um
samning, sem gerður er við eiganda bifreiðar eða annan aðila um
flutning vöru milli landshluta, ef flytjandi annast ekki að jafnaði
flutning fyrir fleiri en einn aðila í sömu ferð. Samningur við flytjanda,
sem fullnægir umræddu skilyrði 1. gr., myndi hins vegar falla undir
LSL, enda þótt bifreiðin flytji í tiltekið skipti einungis vörur fyrir
einn mann.
Hugtakið vara (vörusending) er ekki skilgreint í lögunum. Eigi
eru heldur nein ákvæði í LSL er undanskilja flutning á tilteknum teg-
undum farms gildissviði laganna, t.d. póst o.fl., svo sem gert er í hlið-
stæðum norrænum lögum og 98. gr. loftfl.. Eigandi póstsendingar,
sem sannanlega hefur skemmst eða glatast í flutningi, myndi þó ekki
eiga bótarétt á hendur póststjórninni eftir reglum LSL heldur sam-
kvæmt bótaákvæðum póstlaga nr. 31/1940 eða öðrum réttarreglum,
sem gilda sérstaklega um það efni.3
í 2.- 4. gr. LSL eru ákvæði um flutning með vögnum, sem tengdir
eru eða festir við bifreið, ákvæði um upphaf flutnings og lok o.fl.
1 5. gr. LSL segir, að ákvæði laganna um réttaráhrif aðgerða eða
aðgerðaleysis sendanda, flytjanda eða móttakanda taki einnig til þess
háttar athæfis umboðsmanna þeirra eða starfsmanna, sem viðkom-
andi aðilar ábyrgjast. Ákvæði þetta er ekki svo skýrt sem skyldi.
3 Vafasamt er, hvort eigandi pósts gæti átt bótarétt vegna missis eða skemmda á
póstsendingu gagnvart sjálfstæðum aðila, er annast flutning pósts fyrir póststjórnina.
Ef svo er, myndi slíkur réttur verða reistur á almennum skaðabótareglum eða eftir
atvikum bótaákvæðum umferðarlaga.
12