Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Blaðsíða 41
alhvatamaðuv að því, að Alþingi íslendinga var sett á fót og fá laga-
frumvarp sitt samþykkt sem lög fyrir landið allt. Til þessa mun hann
hafa notið stuðning fóstbróður síns og fleiri góðra manna.
III.
I Þórðar sögu hreðu segir, að Úlflj ótur hafi haft út lög til Islands, að
ráði Þorleifs ins spaka. I fljótu bragði mætti þá líta svo á, að Þorleifur
spaki hafi ótilkvaddur átt frumkvæði að lagasetningu fyrir Islendinga.
Þorleifur kom ekki til Islands svo vitað sé. Frumkvæði hans að þessari
lagasetningu verður því harla ósennilegt. Þegar Úlfljótur hafði farið til
Noregs, dvalist þar í þrjá vetur og sett, ásamt Þorleifi frænda sínum,
lög þau, er síðar voru nefnd Úlfljótslög, eins og frá er greint í Þorsteins
sögu uxafóts, þá er hinsvegar líklegt, að Þorleifur hafi að lokum gefið
frænda sínum það ráð, að hafa lagafrumvarpið, sem þeir frændur höfðu
samið, með sér til íslands.
Fræðimönnum kemur og saman um, að Úlfljótur hafi verið sendur
til Norégs til þess að undirbúa löggjöf fyrir landið, sbr. ritgerð Einars
prófessors Arnórssonar um Úlfljót í Skírni 1929, XXX, ritgerðasafn
Ólafs prófessors Lárussonar: Lög og saga, t.d. bls. 60 og 119 og Sig.
Líndal: Sendiför Úlfljóts í Skírni 1969, bls. 5-26. E.A. nefnir einkum þrjá
menn, sem líklegir hafi verið til að eiga hlut að ferð Úlfljóts.
Menn þessir eru Hrollaugur Rögnvaldsson, Þorsteinn Ingólfsson og Þórð-
ur Skeggi. Hann telur og vafalaust, að margir bestu menn landsins hafi
tekið þátt í ráðagerðum um utanför Úlfljóts og lagaundirbúningi (Skírn-
ir 1929 bls. 161-162). Því miður skortir heimildir um tildrög að för Úlf-
ljóts, svo ekkert er nú með öryggi um það vitað. Það getur því varla tal-
ist saknæmt þó menn brjóti heilann um þetta efni og komi fram með
hugmyndir, sem þeim þykja athygliverðar eða sennilegar. Það er t.d.
eðlilegt að kanna hvað sögurnar okkar hafa að segja um kynni Úlfljóts
við aðra menn hér á landi.
Fyrstan ber þá að nefna Grím geitskör. Hann var fóstbróðir Úlf-
ljóts. Hann hefur naumast þekkt aðra menn betur en Grím, nema þá,
sem stóðu honum næst og voru í fjölskyldu hans. Um Grím er það eitt
sagt, að hann hafi verið fóstbróðir Úlfljóts og að hans ráði kannað Is-
land allt. Úlfljótur var fyrir þeim fóstbræðrum, sem ráða má af því, að
hann fól Grími að kanna landið.
Þar næst virðist eðlilegt að gefa gaum að Gunnari syni Úlfljóts. Hann
var tengdasonur Helga ins magra, sem líklega hefur verið einn helsti
höfðinginn í Norðlendingafjórðungi á þeim tíma. Þær tengdii' hafa vafa-
laust leitt til náins kunningsskapar á milli Úlfljóts og Helga og fjöl-
35