Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Blaðsíða 43
2
DÓMSREIFUN
Aðilar Sóknaraðili: Birgir Guðjónsson (S). Varnaraðilar: Nefnd
samkvæmt 1. mgr. 33. gr. 1. 56/1973 um heilbrigðisþjónustu og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið (V). Réttargæslustefndi: Þórður
Harðarson. Gagnsök.
Málavextir S var einn sex umsækjenda um starf yfirlæknis lyflækn-
ingadeildar Borgarspítalans í Reykjavík. Stöðunefnd skv. 1. mgr. 33.
gr. 1. 56/1973 skilaði álitsgerð um hæfni umsækjenda til starfsins og
var þeim raðað í töluröð eftir hæfni. S var raðað í fimmta sæti en
ÞH, sem stöðuna hlaut, í fyrsta sæti. S taldi ýmsa annmarka vera á
stöðuveitingunni og þegar hann fékk ekki kröfum sínum framgengt
innan stj órnsýslunnar höfðaði hann dómsmál til þess að fá tilteknum
atriðum álitsgerðarinnar hnekkt.
Dómkröfur S gerði m.a. eftirfarandi dómkröfur: (a) að röðun stöðu-
nefndar á umsækjendum yrði dæmd ómerk, (b) að dæmt yrði að full-
yrðing stöðunefndar í bréfi til heilbrigðis- og tryggingamálai’áðuneyt-
isins, í framhaldi af álitsgerð sinni, um að ÞH sé sérfræðingur í lyf-
lækningum, væri röng.
V krafðist sýknu í héraði en í Hæstarétti að málinu yrði vísað frá
héraðsdómi en til vara að héraðsdómurinn yrði staðfestur.
Málsástæður Um (a). S taldi röðun umsækjenda í töluröð eftir hæfni
ólöglega bæði vegna forms- og efnisástæðna. Lög heimiluðu ekki slíka
röðun og hún væri ólögmæt végna þess að nefndin hafi farið rangt með
stöðuheiti ÞH, sem væri sérfræðingur í hj artalækningum en ekki í
lyflækningum.
V benti m.a. á að veitingarvaldshafi væri ekki bundinn af áliti nefnd-
arinnar á annan hátt en þann að eingöngu mætti veita stöðu þeim,
sem nefndin áliti hæfan. Röðun á umsækjendum skipti í því efni engu
máli. Nefndin hafi einnig að öðru leyti farið að lögum.
Um (b). S hélt því fram að stöðunefnd hafi farið rangt með sér-
fræðiviðurkenningu ÞH í álitsgerð sinni og rangtúlkað hana fyrir ráðu-
neytinu. ÞH væri sérfræðingur í hjartalækningum en ekki í almenn-
um lyflækningum eða lyflækningum skv. réttri skilgreiningu.
V hélt því m.a. fram að ÞH væri viðurkenndur sérfræðingur í lyf-
lækningum, þ.e.a.s. hjartalækningum, sem féllu undir hugtakið lyf-
lækningar, sbr. X-lið 4. gr. rgj. 39/1970 um veitingu lækningaleyfis og
sérfræðileyfa.
37