Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Page 53
Frá
Lögfræöingafélagi
íslands
AÐALFUNDUR 1989
Árið 1989, fimmtudaginn 26. október, ki. 18.00, var haldinn aðalfundur Lög-
fræðingafélags íslands að Hótel Holiday Inn.
1. Formaður félagsins, Garðar Gíslason borgardómari, setti fundinn og
bauð fundarmenn velkomna. Fundarstjóri var kosinn Hallvarður Ein-
varðsson, en Ingvar J. Rögnvaldsson fundarritari.
2. Fundarstjóri gerði ráð fyrir að rétt væri til fundar boðað og gaf því for-
manni orðið fyrir skýrslu stjórnar, en þar eð skýrslan er birt í heild í
blaðinu verður efni hennar ekki endursagt á þessum vettvangi, en vísað
til þess er þar kemur fram. Að loknum flutningi formanns var orðið
gefið laust, en enginn tók til máls og var því haldið áfram með dagskrá
aðalfundar.
3. Reikningar félagsins starfsárið 15. október 1988 til 14. október 1989
höfðu verið lagðir fram í upphafi fundarins og Ijósritum auk þess dreift
til fundarmanna. Gjaldkeri félagsins Sigríður Thorlacius gerði grein
fyrir helstu tekjuliðum og vakti athygli á því að auk hefðbundinna út-
gjaldaliða væri nýr útgjaldaliður vegna launa framkvæmdastjóra félags-
ins. Tekjur umfram gjöld á liðnu rekstrarári hefðu verið kr. 319.171, en
eignir umfram skuldir í lok rekstrarárs kr. 1.416.630.
4. Reikningum tímaritsins vegna almanaksársins 1988 og eigna í lok þess
árs hafði sömuleiðis verið dreift meðal fundarmanna og gerði fram-
kvæmdastjóri tímaritsins, Guðrún Margrét Árnadóttir, ítarlega grein
fyrir einstökum liðum auk þess að lesa upp áritun endurskoðenda. Nið-
urstaða rekstrarársins 1988 var hagnaður kr. 243.690, en eigið fé í árs-
lok kr. 1.099.519.
5. Fundarstjóri þakkaði skýrslur um fjárvörslur og gaf síðan orðið laust
um allar skýrslurnar og hvatti menn til að láta I sér heyra. Enginn tók
til máls eða gerði athugasemdir og voru reikningar þv[ bornir upp og
samþykktir.
6. Kjör stjórnar og endurskoðenda.
Eftir tilnefningu fráfarandi stjórnar voru kjörinr: Formaður Garðar Gísla-
son borgardómari og varaformaður Skúli Guðmundsson skrifstofustjóri.
Meðstjórnendur: Dögg Pálsdóttir deildarstjóri; Erla Árnadóttir hdl.;
Ingvar J. Rögnvaldsson skrifstofustjóri; Valtýr Sigurðsson borgarfógeti
259