Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Page 57
Frá
Dómarafélagl
íslands
SKÝRSLA STJÓRNAR DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS
STARFSÁRSÐ 19E8-1S89
Lögð fram á dómaraþingi 5.— 6. október 1989
I. STJÓRN DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS.
Aðalfundur Dómarafélags íslands árið 1988 var haldinn I Borgartúni 6
Reykjavík dagana 3. og 4. nóvember. Þá voru eftirtaldir kjörnir í stjórn
félagsins: Friðgeir Björnsson yfirborgardómari, formaður; Halldór Kristinsson
sýslumaður og bæjarfógeti; Haraldur Henrysson hæstaréttardómari; Pétur
Kr. Hafstein sýslumaður og bæjarfógeti; Valtýr Sigurðsson borgarfógeti.
Varastjórn: Már Pétursson sýslumaður og bæjarfógeti; Sigríður Ingvarsdóttir
héraðsdómari.
Stjórnin kaus Pétur varaformann, Harald ritara og Valtý gjaldkera. Stjórn-
in hefur haldið 6 bókaða fundi á starfsárinu. Endurskoðendur voru kjörnir:
Björn Hermannsson tollstjóri; Ragnar Hall borgarfógeti.
II. SKIPUN í EMBÆTTI.
Eftirtaldir hafa verið skipaðir í embætti á árinu: 1.1.1989 Haraldur Henrýs-
son hæstaréttardómari, Reykjavík; 1. 2.1989 Guðjón St. Marteinsson saka-
dómari, Reykjavik; 1.2.1989 Þorsteinn Skúlason héraðsdómari Selfossi; 1.3.
1989 Ólafur K. Ólafsson bæjarfógeti, Neskaupstað; 1. 3. 1989 Lárus Bjarna-
son sýslumaður og bæjarfógeti, Seyðisfirði; 1.8.1989 Jón Magnússon sýslu-
maður og bæjarfógeti, Stykkishólmi; 1. 8. 1989 Kjartan Þorkelsson bæjarfógeti,
Ólafsfirði.
III. LAUSN FRÁ EMBÆTTUM.
1.10.1989 Ármann Kristinsson sakadómari.
IV. SETNINNG í EMBÆTTI.
Eftirtaidir hafa verið settir í embætti á starfsárinu og eru settir við lok þess:
1.4.—15.10.1989 Þorgerður Erlendsdóttir héraðsdómari, Kópavogi; 1.8.—
31.12.1989 Gunnar M. Guðmundsson hæstaréttardómari, Reykjavík; 1.9.
1989 — 31.8.1990 Gréta Baldursdóttir borgarfógeti, Reykjavík; 15.9. — 31.
12.1989 Georg K. Lárusson sýslumaður, Búðardal; 16.9. — 31.12.1989 Þor-
geir Ingi Njálsson héraðsdómari, Selfossi.
263