Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Page 61
1. The responsibility of the judge. His role and position vis-a-vis other
powers within the State and the Society. The independence of the
Judiciary. The accountability of its members to the State and to the
individuals.
2. The judge and the co-operation of other Justice-related professions:
Lawyers, Law-Professors, Pubiic Notaries, Professional Experts (in
Medicine, Engineering, Commercial practice, etc.), other State-
Officials.
3. The judge and some critical aspects of the modern criminal proceed-
ing, with practicular regard to the pre-trial detention and its alternatives.
TöluverS vinna hefur farið til undirbúnings þátttöku í aSalfundinum, s.s.
aS svara spurningum formanna 1. og 3. nefndar, en svör aðildarfélaganna
verða lögð til grundvallar umræðum.
Alþjóðasamband dómara hefur unnið að því að koma á samstarfi við hinar
ýmsu nefndir Evrópuráðsins, þannig að fulltrúi sambandsins taki þátt í störf-
um þeirra sem beinn þátttakandi eða áheyrnarfulltrúi.
VII. DÓMARAFÉLAG ÍSLANDS
Dómarafélag íslands verður 50 ára 1991. Sjálfsagt mál er að þeirra tíma-
móta verði minnst með einhverjum hætti. Af og til hefur verið rætt um að
skrifuð yrði saga félagsins. Vafasamt er að sú söguskráning sé möguleg
vegna þess að svo virðist sem mikið af gögnum félagsins sé ekki í þess
fórum. Vera kann að þessi gögn sé einhvers staðar að finna, og ef svo skyldi
vera að félagsmenn hefðu eitthvað undir höndum af því tagi væri æskilegt
að þeir létu stjórn félagsins vita sem fyrst af því. Hvað sem þessari hugmynd
líður þá er nauðsynlegt að athuga sem fyrst með hvaða hætti mögulegt er
að minnast afmælisins svo að sómi sé að.
VIII. NORRÆNA LÖGFRÆÐINGAÞINGIÐ Á ÍSLANDI 1990.
Eins og kunnugt er verður þing norrænna lögfræðinga haldið hér á landi
dagana 22.—25. ágúst 1990. Ástæða er til þess að hvetja félagsmenn til
þátttöku í þinginu.
Á undanförnum þingum norrænna lögfræðinga hefur verið venja að stjórn-
ir norrænu dómarafélaganna og stundum aðrir dómarar sem þingin hafa
sótt hittist sérstaklega daginn fyrir þingið og ræði sameiginleg áhugamál.
Var þessi siður tekinn upp að frumkvæði dr. Ármanns Snævars. Sjálfsagt er
að halda hann í heiðri og hefja undirbúning að þessum fundi. Finnskir dóm-
arar hafa þegar haft samband við stjórn D.i. um þennan fund, og ætlunin
er að formenn norrænu dómarafélaganna hittist á þingi Alþjóðasambands
dómara nú í haust til að ræða um fundarefni og skipulagningu fundarins.
IX. BREYTINGAR í EVRÓPU.
Ekki hefur farið framhjá neinum að árið 1992 verða ríki Evrópubandalags-
ins eitt markaðssvæði. Fríverslunarbandalag Evrópu, EFTA, á nú í samninga-
viðræðum við EBE löndin um viðskipti og verslun undir forystu utanríkisráð-
herra íslands. Þessir samningar munu nær örugglega hafa ýmsar breytingar
í för með sér, jafnvei á lögsögu íslenskra dómstóla. Er full ástæða til þess
267