Tímarit lögfræðinga - 01.12.1989, Blaðsíða 64
Frá
Lögmaimafélagi
íslantls
UM STARFSEMI LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
STARFSÁRIÐ 1988-1989
Aðalfundur L.M.F.Í. 1989 var haldinn 31. mars sl. Formaður, Hákon Árnason
hrl, minntist í upphafi þriggja félagsmanna er látist höfðu á starfsárinu,
þeirra Guðjóns Steingrímssonar hrl., Gunnars J. Möller hrl. og Hafsteins
Baldvinssonar hrl.
FÉLAGSFUNDIR
Á starfsárinu voru haldnir félagsfundir sem hér segir:
1. Hinn 27. maí var haldinn hádegisverðarfundur. Magnús Thoroddsen,
þáverandi forseti Hæstaréttar ræddi um málflutning fyrir Hæstarétti. Alls
sóttu 73 lögmenn fundinn og var þarna um fjölmennasta hádegisverðar-
fund ( sögu félagsins að ræða.
2. Hinn 30. september var haldinn hádegisverðarfundur. Til umræðu voru
tillögur nefndar þriggja lögmanna, sem stjórnin skipaði á sínum tíma,
um hugsanlegar breytingar á lögum nr. 61/1942 um málflytjendur. Fram-
sögu hafði einn nefndarmanna, Eiríkur Tómasson hrl.
3. Þriðji hádegisverðarfundurinn á starfsárinu var haldinn 21. október.
Friðgeir Björnsson yfirborgardómari ræddi um þær breytingar á lögum
nr. 85/1936 um meðferð einkamála í héraði — lög nr. 54/1988 — sem
gildi tóku 1. júlí 1988.
4. Hinn 20. janúar var enn haldinn hádegisverðarfundur. Stefán Már Stef-
ánsson prófessor og Ólafur W. Stefánsson skrifstofustjóri í dómsmála-
ráðuneytinu gerðu grein fyrir samningi EBE og EFTA ríkja um dóms-
vald og fullnustu dóma í einkamálum, svonefndum ,,Luganosamningi“
frá 16. sept. 1988.
Þá skal hér getið um morgunverðarfundina þrjá:
Sá fyrsti var haldinn 30. janúar sl. Á fundinum voru reifaðir dómar Hæsta-
réttar frá 20. des. sl., sem m.a. fjölluðu um lögmæti hlutafjárútboðs Hafskipa
hf. Framsögu hafði Jóhann H. Nielsson hrl.
Aftur komu lögmenn saman til morgunverðarfundar hinn 27. febrúar. Til
umræðu voru tekin nokkur atriði varðandi rekstur og stjórnun lögmanns-
skrifstofu. Framsögu hafði Ragnar Aðalsteinsson hrl.
270