Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Síða 29
í framkvæmd ætti að vera auðvelt að tryggja sér sönnun fyrir sendingu
tilkynningar því, eins og áður segir, þá telst tilkynning send nógu snemma, ef
bréf, sem hefur hana að geyma, er afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr.
5. mgr. 45. gr. vxl. Tilkynningaskyldunni er því fullnægt ef tilkynningin er
réttilega af stað send, enda þótt hún misfarist á leiðinni og komist aldrei í hendur
viðtakanda.” Póstkvittun fyrir viðtöku t.d. á ábyrgðarbéfi, þar sem fram kæmi
hver er sendandi og viðtakandi, væri því almennt nægjanleg sönnun.34
Noti hinn tilkynningaskyldi hins vegar aðra aðferð við að koma tilkynning-
unni til skila, en að senda hana í pósti, ber hann sönnunarbyrðina fyrir því að
tilkynningaskyldunni hafi verið fullnægt innan frestsins.35
Hafi hinn tilkynningaskyldi látið hjá líða að senda tilkynningu til víxilskuldara
af ástæðum sem um getur í kafla 5 hér að framan, hefur hann sönnunarbyrði fyrir
því að slíkt hafi verið heimilt.
Sönnun fyrir því að tilkynningaskyldu hafi verið fullnægt má koma að með
hvaða hætti sem er.36
9. RÉTTARÁHRIF ÞESS ÞEGAR TILKYNNINGASKYLDU ER EKKI
FULLNÆGT
Vanræksla á tilkynningaskyldu verður aðallega með þrennum nætti:
1) Þar sem hinn tilkynningaskyldi lætur alfarið hjá líða að sinna henni
2) Tilkynningin kemur of seint fram
3) Efni tilkynningarinnar er ófullnægjandi.
Um réttaráhrif þess, þegar tilkynningaskyldu er ekki fullnægt, er fjallað í 6.
mgr. 45. gr. vxl. Þar segir að sá sem ekki sendi tilkynningu innan nefnds frests
glati ekki fullnusturétti sínum. Á grundvelli þessa ákvæðis virðast margir
ranglega álíta tilkynningar skv. 45. gr. vxl. með öllu þýðingalausar. í 6. mgr. 45.
gr. vxl. segir síðan að hinn tilkynningaskyldi skuli hins vegar ábyrgjast allt það
tjón sem hlýst af vanrækslu hans við að sinna tilkynningaskyldu sinni. Aftur á
móti mega skaðabæturnar þó ekki fara fram úr víxilfjárhæðinni. Hér er komið
að hinum raunhæfu réttaráhrifum þess að vanrækt er að senda tilkynningu innan
tilkynningafrests.
33 Ólafur Lárusson: Víxlar og tékkar, 76.
34 Rasting: Den danske Veksel- og Checklovgivning, 164.
35 Stranz: Wechselgesetz, 257.
36 Lyngsd: Checkloven, 185. Sjá hins vegar gagnstæöa reglu í 44. gr. við sönnun á samþykkisskorti
eða greiðslufalli við sýningu.
251