Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Blaðsíða 34

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Blaðsíða 34
eða umboðsmaður skv. 18. gr. vxl., hlýtur viðskiptamaður bankans að mega treysta því að bankinn fullnægi henni, ekki síst þar sem hann hefur á að skipa sérfræðingum, tekur að sér að innheimta fjárkröfur í atvinnuskyni og undan- þiggur sig ekki sérstaklega skyldu eða ábyrgð á sendingu slíkra tilkynninga. Verður því ekki annað séð en að verulegar líkur séu á að banki verði talinn bótaskyldur í slíkum tilvikum. 14.2 Tilkynningar vegna greiðslufalls tékka Hér á eftir verður athugað hvernig bankar og sparisjóðir sinna tilkynninga- skyldu 42. gr. tél., þegar þeir hafa keypt tékka, sem greiðslubanki neitar að innleysa. Samkvæmt samningi banka og sparisjóða um tékkaviðskipti tilkynnir sá banki, er keypt hefur tékkann, síðasta framseljanda um greiðslufall tékkans. Samkvæmt þessum starfsreglum virðist hvorki gert ráð fyrir að ábyrgðarmönn- um síðasta framseljanda séu sendar tilkynningar, sbr. 2. mgr. 42. gr. tél., né útgefanda, sbr. 1. mgr. 42. gr. tél. Hins vegar fær útgefandi oftast senda tilkynningu frá greiðslubanka um tékka sem eru innistæðulausir. Slík tilkynning er hins vegar ekki send með sannanlegum hætti. Gegn andmælum útgefanda getur tékkahafi þess vegna ekki borið því við að hann hafi mátt láta hjá líða að senda útgefanda tilkynningu sökum vitneskju hans um greiðslufallið.57 Fyrrnefndar tilkynningar eru aðeins sendar til síðasta framseljanda varðandi tékka sem nema fimmfaldri ábyrgðarfjárhæð tékka58 eða hærri fjárhæð, (nú kr. 50.000). Engar tilkynningar eru sendar vegna tékka sem nema lægri fjárhæð. Eftir því sem næst verður komist eru fyrrnefndar tilkynningar sendar „í lok fimmta afgreiðsludags eftir innlausn“ og virðist innlausnardagurinn talinn með. Séu tékkar því ávallt tilkynntir til greiðslujöfnunarstöðvar sama dag og banki hefur keypt þá, er ljóst að fyrrnefndar tilkynningar eru sendar innan tilkynn- ingafrestsins skv. 2. ml. 5. mgr. 42. gr. tél.” Bankar og sparisjóðir sinna tilkynningaskyldu sinni með því að senda framseljanda tilkynningu í almennum pósti. Þeir ná því ekki að sanna að tilkynning hafi verið send, sé því mótmælt af aðila sem rétt hefur átt á tilkynningu, sbr. t.d. Hrd. 17. apríl 1991 þar sem tékkahafi (banki) var ekki talinn hafa sannað að hann hefði sent tilkynningu fyrr en með innheimtubréfi. Að framansögðu athuguðu er ljóst að mikill misbrestur er á því að bankar og sparisjóðir sinni tilkynningaskyldu sinni við greiðslufall tékka. Virðist því fyllsta 57 Sjá nánar kafla 5 og 7 hér að framan. 58 Varðandi ábyrgðarreglur bankanna, sjá Páll Hreinsson: Getur greiðslubanki verið tékkahafi?, 106. 59 f 42 . gr. tél. segir að tékkahafi skuli senda tilkynningu innan fjögurra virkra daga. Við útreikning á fresti þessum er hins vegar sá dagur. sem talið er frá, ekki talinn með. sbr. 3. mgr. 55. gr. tél. 256
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.