Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Síða 50
samfélagsþjónustu en umsjón verður að haga með þeim hætti að ekki valdi
kergju.
6. Lög og lagafrumvörp um samfélagsþjónustu mæla almennt fyrir um vinnu í
takmarkaðan tíma og einnig takmörkun þess tímabils sem fullnusta refsing-
arinnar má fara fram á.
7. Ef það bregst að dómfelldi fullnægi vinnuskyldu sinni kveður dómstóllinn
venjulega upp nýjan dóm (England, Ástralía, Skotland, Holland, Belgía
(frv.) og Noregur (frv.)). í Englandi kom sekt venjulega í stað samfélags-
þjónustu í Magistrates’ Courts á árinu 1988, en unglingafangelsi eða
fangelsisrefsing í Crown Courts.
8. Nefndin álítur samfélagsþjónustu gagnlegt refsiúrræði, en vill ekki draga
fjöður yfir viss vandkvæði sem á því eru.
Sjóréttarráðstefna í Turku 30. september til 1. október 1991
Dagana 30. september og 1. október sl. var haldin ráðstefna fyrir dómara um
sjórétt í Turku í Finnlandi. Þessi ráðstefna var hin áttunda sinnar tegundar sem
Norræna sjóréttarstofnunin í Oslo, Nordisk Institutt for Sj0rett, heldur. Að
þessu sinni bauð hofrétturinn í Turku til ráðstefnunnar og annaðist skipulagn-
ingu hennar þar á staðnum. Þátttakendur voru 40 talsins, flestir frá Noregi. Af
íslands hálfu sátu ráðstefnuna Bjarni K. Bjarnason hæstaréttardómari og
Friðgeir Björnsson yfirborgardómari.
Á ráðstefnunni voru haldin fimm erindi. Hið fyrsta hélt prófessor Erling
Selvig, Noregi, um réttarþróun á Norðurlöndum ásviðisjóréttar 1989-1991. Hið
næsta flutti prófessor Jan Ramberg, Svíþjóð, um alþjóðlega réttarþróun á sviði
sjóréttar 1989-1991. Þriðja erindið flutti prófessor Thor Falkanger, Noregi, um
nýja norræna löggjöf um skaðabætur fyrir umhverfisspjöll. Hið fjórða flutti
Frank Poulsen forseti Sjó- og verslunardómsins í Kaupmannahöfn um sjópróf.
Fimmta og síðasta erindið flutti Geir Ulvsten, Noregi, starfsmaður Norrænu
sjóréttarstofnunarinnar, um takmörk lögsögu ríkja yfir kaupskipun að alþjóða-
lögum. Þess er rétt að geta að prófessorarnir Selvig og Falkanger eru báðir
starfsmenn sjóréttarstofnunarinnar.
Þá voru lögð fram verkefni sem svipaði mjög til raunhæfra verkefna hér við
háskólann, þó töluvert flóknari. Annað var um hlutverk dómstóla að því er
varðar sjópróf og kyrrsetningu skipa og réttarfar þar að lútandi. Það verkefni
sömdu tveir finnskir prófessorar við háskólann í Turku, Peter Wetterstein og
Hannu Honka. Hitt verkefnið var um lögsögu, laganotkun og svokallaða
bindandi löggjöf á sviði sjóréttar. Það verkefni samdi Mette Christensen dómari
við Sjó- og verslunardóminn í Kaupmannahöfn. Þátttakendum var skipt í fimm
hópa sem hver um sig fjallaði um verkefnin og reyndi að leysa þau eftir föngum.
272