Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Síða 54
Kl. 14.00 flutti Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari erindi um skipan
ákæruvalds eftir lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Næst flutti Pétur Kr. Hafstein hæstaréttardómari erindi um ákæruvald
lögreglustjóra (sýslumanna) eftir gildistöku aðskilnaðarlaga nr. 92/1989.
Af frummælendum tók síðastur til máls Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu-
stjóri og flutti erindi um sönnunargögn og sönnunarfærslu í sakamálum.
Við almennar umræður um efni dagsins tók fyrstur til máls Steingrímur
Gautur Kristjánsson borgardómari. Lauk hann lofsorði á ræður frummælenda
og tók undir ýmislegt í máli þeirra. Þá varpaði hann fram þeirri spurningu, hvort
ákæruvaldið ætti ekki einnig að annast fulinustu refsinga.
Þá tók til máls Þórður Björnsson fyrrverandi ríkissaksóknari. Vakti hann máls
á ýmsum úrræðum og aðferðum við framkvæmd aðskilnaðarlaga og nýrra laga
um meðferð opinberra mála, sem hann taldi horfa til einföldunar. Einnig gerði
Þórður að umræðuefni þá vankanta, sem hann telur vera á meðferð kærumála,
sem felld eru niður, og lagði til að við gildistöku nýrra laga yrði tryggt að bæði
kærendum og þeim sem kærðir eru fyrir refsiverða hegðun verði tilkynnt
formlega um niðurfellingu slíkra mála. Kvaðst Þórður hafa heimildir fyrir því að
mál þessi væru nú í nokkrum ólestri. Þá vildi hann að tryggður yrði réttur þeirra
sem legðu fram skaðabótakröfur við rannsókn og meðferð opinberra mála í
samræmi við breytt lagaákvæði þar að lútandi í hinum nýju réttarfarslögum.
Næstur tók til máls Friðjón Þórðarson sýslumaður. Kvaðst hann líta á
gildistöku aðskilnaðarlaga í júlí á næsta ári sem lokin á áralangri þróun á sviði
réttarfars í landinu og gagnrýndi raddir þess efnis að um rótæka byltingu væri að
ræða í anda þess sem gerst hefði í austurvegi. Jón ísberg sýslumaður Húnvetn-
inga tók undir orð Friðjóns og minnti dómara í opinberum málum á breytt
hlutverk þeirra á næsta ári og á það hlutleysi, sem gert væri ráð fyrir við meðferð
mála, af þeirra hálfu.
Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
benti á að umboðsmaður Alþingis hefði að gefnu tilefni samið álitsgerð vegna
niðurfellingar opinberra kærumála.
Að síðustu svöruðu frummælendur gagnrýni og tóku undir ýmislegt í máli
ræðumanna.
Föstudaginn 11. nóvember var þinginu fram haldið. Guðrún Erlendsdóttir
forseti Hæstaréttar tók þá við fundarstjórn.
Þór Vilhjálmsson hélt erindi um það hvort þörf sé á samskiptareglum
lögmanna og dómara í dómsölum og Garðar Gíslason um réttarheimildir
íslensks réttar og beitingu þeirra. Síðan flutti Olav T. Laake formaður norska
dómarafélagsins ávarp og færði félaginu mynd af uppkvaðningu hins fyrsta dóms
fyrir hina fyrstu synd.
276