Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Blaðsíða 27

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Blaðsíða 27
breytingu einni, þegar um kröfuhafaskipti er að ræða, að kominn er nýr kröfuhafi í stað hins upphaflega. Þá er og rétt að hafa í huga, að hinn nýi kröfuhafi byggir rétt sinn að öllu leyti á rétti fyrri kröfuhafa og þeim atvikum eða athöfnum, sem leiddu til stofnunar hins upprunalega skuldarsambands að viðbættum framsalsgerningnum. Þess vegna þurfa ekki á nýjan leik að liggja fyrir þau atvik eða athafnir, sem endranær þurfa að vera til staðar, svo krafa stofnist á hendur skuldara.4 Þegar um skuldaraskipti er að ræða, er einnig eðlilegt, a.m.k. í mörgum tilvikum, að tala um aðilaskipti eða yfirfærslu skyldna. Pó er talið, að skuldara- skipti hafi almennt séð á sér meiri einkenni stofnunar nýrrar kröfu, heldur en kröfuhafaskiptin, en jafnframt er viðurkennt, að lögfræðilega séð skipti ekki máli, hvort sjónarmiðið er lagt til grundvallar.5 Ólafur Lárusson taldi eðlilegra að líta þannig á skuldaraskipti, að hin fyrri krafa hefði fallið niður fyrir uppgjöf kröfuhafa, og ný krafa hefði stofnast á hendur hinum nýja skuldara. Ussing taldi, að því, sem gerðist, yrði best lýst með því að segja, að komin væri ný skuldbindingí stað hinnargömlu. Benti hann á í því sambandi, að skuldbindingu þess, er skylduna hefði tekið að sér, fylgdu ekki forgangsréttindi, t.d. við gjaldþrot, þótt slík réttindi hefðu fylgt fyrri skuld, og tryggingarréttindi þriðja manns, sem fylgt hefðu fyrri skuld, fylgdu ekki skuldbindingu hins nýja skuldara.'1 Það tíðkast að greina skuldarsamböndin m.a. í einhliða og tvíhliða skuldar- sambönd.7 Einhliða er skuldarsambandið, þegar það er aðeins kröfuhafinn, sem á kröfu til greiðslu úr hendi skuldara. Dæmi slíks eru gjafasamningar og skuldabréf. Tvíhliða er skuldarsambandið hins vegar, þegar báðir aðilar þess, þ.e. kröfuhafi og skuldari, eiga kröfu til greiðslu úr hendi hins. Venjulega eru greiðslur þessar gagnkvæmar, þ.e. hvor þeirra um sig er endurgjald fyrir hina. Er þá oft talað um greiðslu annars og gagngjald hins. Það gefur auga leið, að við skuldaraskipti er til ólíkra atriða að líta, eftir því hvort um skuldbindingu í einhliða eða tvíhliða skuldarsambandi er að ræða. Er aðstaðan líka oft sú, að aðili í tvíhliða og gagnkvæmu skuldarsambandi getur framselt þau réttindi, sem samningur veitir honum, þótt hann geti ekki jafnframt losnað undan þeim skyldum, sem samningssambandið leggur honum á herðar. Þannig segir t.d. í 25. gr. siglingalaga nr. 34/1985, að framselji farmsamningshafi rétt sinn samkvæmt samningnum, ábyrgist hann eigi að síður efndir samnings- 4 Sjá Julius Lasscn, Obligationsretten, Kaupmannahöfn 1917 - 1920, bls. 539; Henry Ussing, sama rit. bls. 209 - 210; Carl Jacob Arnholm. sama rit, bls. 68. 5 Bernhard Gomard, bls. 310. í Rómarrétti gilti sú regla, að kröfur, sem ekki voru tengdar verðbréfi, voru taldar óframseljanlegar. Það viðhorf, að lýsa yfirfærslu eða aðilaskiptum að kröfuréttindum sem stofnun nýrrar kröfu á rót sína að rekja til kenninga, sem höfnuðu því viðhorfi. * Ólafur Lárusson, sama rit, bls. 41. Henry Ussing, sama rit, bls. 292 - 293. 7 Sjá t.d. Bernhard Gomard, Obligationsret, 1. del, bls. 17 og Ólafur Lárusson, sama rit, bls. 8. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.