Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Side 45

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Side 45
6.6.1 Um loforð í þágu þriðja manns Venjulegast er það svo, að loforð skapar einungis rétt fyrir loforðsmóttak- anda á hendur loforðsgjafa. Þegar um þriðjamannsloforð er að ræða, stofnast, eins og nafnið bendir til, réttur til handa þriðja manni á hendur loforðsgjafa. Samkvæmt eldri norskum rétti gilti sú regla, eins og áður er fram komið, að loforð kaupanda fasteignar (loforðsgjafa) til seljanda eignarinnar (loforðsmót- takanda) veitti þriðja manni (kröfuhafa) beinan rétt til þess að krefja kaupand- ann persónulega um greiðslu skuldarinnar. 6.6.2 Lagaákvæði um sjóði og lánastofnanir Á því álitaefni, sem hér um ræðir, hefur í nokkrum tilvikum verið tekið í sérlagaákvæðum, er gilda um ákveðnar lánastofnanir og sjóði. Það einkennir efni flestra þessara lagaákvæða, að lánveitanda, sem veitt hefur lán gegn veði í þar tilgreindum veðandlögum, er heimilt að heimta lánið endurgreitt að fullu eða að hluta, ef eigendaskipti verða að veðandlaginu: a) Lög nr. 60/1928, um heimild fyrir veðdeild Landsbanka íslands til að gefa út nýja flokka (seríur) bankavaxtabréfa I 11. gr. laganna segir, að heimilt sé veðdeildinni við hver eigendaskipti að heimta lánið borgað aftur að öllu eða nokkru leyti. í 12. gr. segir, að vilji nýr kaupandi taka að sér greiðslu á láni úr þessum flokkum, skuli hann leita samþvkkis Landsbankastjórnar um það. Samþykki hún, að hinn nýi kaupandi taki lánið að sér, skal hann innan sex mánaða frá kaupdegi sanna eignarrétt sinn fyrir bankastjórninni og taka lánið að sér. Sambærileg ákvæði eru í lögum nr. 122/1935, lögum nr. 94/1941 og lögum nr. 34/1979 um sama efni. Reglur laga nr. 73/1965, um heimild fyrir veðdeild Landsbanka íslands til að gefa út nýja flokka bankavaxtabréfa, eru hins vegar með öðrum hætti. í 2. mgr. 11. gr. segir, að verði eigendaskipti að fasteign, sem veðsett er veðdeildinni, skuli kaupandi þegar um leið og kaupin gerast. tilkynna veðdeildinni eigenda- skiptin, og skal hann sanna eignarrétt sinn með veðbókarvottorði. Er slík lánsyfirtaka ekki stimpilskyld. í 12. gr. eru talin ýmiss atvik, sem valda því, að bankastjórn er heimilt að að telja eftirstöðvar lánsins komnar í gjalddaga undir eins og án uppsagnar, og meðal þeirra atvika er það, að nýr kaupandi vanrækir að taka lánið að sér. b) Lög nr. 48/1966, um Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja I 10. gr. er ákvæði þess efnis, að heimilt er að heimta lán endurgreitt að nokkru eða fullu, ef eigendaskipti verða að eign, sem veðsett er stofnlánadeild- inni. 39

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.