Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Blaðsíða 53

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1992, Blaðsíða 53
nýr skuldari kæmi í hans stað. Því væri sending tilkynninga til upphaflegs skuldara um greiðslustað handhafabréfs og gjalddaga næg aðvörun, til þess að fella mætti allan höfuðstólinn í gjalddaga, ef greiðslufall yrði á afborgunum og vöxtum, enda geymi bréf ákvæði um gjaldfellingu vegna slíkra vanskila. Sé regla þessi í samræmi við fræðikenningar um skuldskeytingu og aðskilnað milli kröfuréttar og veðréttar, en eigi sé hér á landi skráð regla í lögum þessa efnis. Pá segir í dóminum, að altítt sé, að fasteign skipti einu sinni eða oftar um eiganda, á meðan veðskuld hvíli á henni. Þá skipti það eiganda veðsettrar eignar máli, eigi síður en skuldara samkvæmt veðskuldabréfi, að fá vitneskju um greiðslustað handhafabréfs, þannig að hann geti staðið í skilum um greiðslu afborgana og vaxta, en ella eigi hann á hættu gjaldfellingu alls höfuðstóls skuldarinnar og nauðungarsölu á eign sinni, ef kröfuhafi neyti slíks úrræðis. Enn segir meiri hlutinn, að af dómi Hæstaréttar 10. júní 1936 (Hrd. VII. bindi, bls. 294) þyki mega draga þá ályktun, að kaupandi fasteignar, sem taki að sér í kaupsamningi eða afsali, sem hann láti þinglýsa, greiðslu veðskuldar, sem á hinni keyptu eign hvíli, verði við kaupin eigi aðeins veðþoli, heldur einnig samskuldari að veðskuldinni, þó að hinn fyrri skuldari verði að sjálfsögðu ekki leystur undan skuldbindingu sinni, nema skuldareigandi samþykki. Samkvæmt þessu verði að leggja þá skyldu á herðar eiganda handhafaveð- skuldabréfs að tilkynna eigi aðeins útgefanda þess eða fyrri skuldara samkvæmt því um greiðslustað, heldur einnig eiganda veðsins, sem tekið hafi að sér greiðslu veðskuldar og látið þinglýsa kaupsamningi eða afsali, sem greini frá því. Sé þetta í samræmi við venjur og þarfir viðskiptalífsins. Svo sem áður greini standi skráðar réttarreglur eigi í vegi slíkri niðurstöðu, og hún gangi eigi gegn eðlilegum hagsmunum lánveitanda, en gagnstæð niðurstaða geti hins vegar valdið íbúðareigendum tjóni og eignamissi. í sératkvæði minni hlutans sagði, að ekki væri komið fram, að uppboðsbeið- anda (Benedikt) hafi verið kunnugt um eigendaskipti að fasteigninni eftir útgáfu veðskuldabréfsins. Hann hafi sent Elsu S. Lorange, sem var skuldari samkvæmt veðskuldabréfinu, tvær tilkynningar vegna skuldabréfsins, og henni hafi hlotið að vera ljóst, að samkvæmt því væri bréfið til innheimtu í bankanum og þar bæri henni að greiða afborgun og vexti. Því sé ekki nægilega mótmælt, að Elsa hafi fengið báðar þessar orðsendingar og hún veitt hinni fyrri viðtöku í tæka tíð fyrir umsaminn gjalddaga. Eftir það hafi EIsu verið tilkynnt um eindögun eftirstöðva skuldarinnar og samrit þeirrar tilkynningar send þeim Ólöfu og Sigríði. „ ... Er hér var komið, voru vanskil orðin slík, að framangreind greiðslukrafa ... var 56 Á ööru sjónarmiöi byggir Páll Sigurðsson, Kröfuréttur, Reykjavík 1992, bls. 121, sem segir, að Hrd. 1981 1040 marki skýra stefnu um þetta atriði. f hinu tiivitnaða riti er ýmist vitnað í Hrd. 1980 1041 eða Hrd. 1980 1040, en hlýtur að eiga að vera Hrd. 1981 1040. 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.