Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Blaðsíða 42
varaformaður, Guðni Á. Haraldsson, hrl., er meðstjórnandi og Ingólfur
Hjartarson, hrl., er gjaldkeri.
FRAMHALDSAÐALFUNDUR 29. JÚNÍ 1993
Framhaldsaðalfundur Lögmannafélags íslands var haldinn þann 29. júní
1993. Á dagskrá fundarins voru annars vegar samþykktir, siðareglur og
gjaldskrá L.M.F.Í. - staða þeirra í ljósi nýrra samkeppnislaga, nr. 8/1993 - og
hins vegar aðildaruntsókn L.M.F.Í. að Ráði lögmannafélaga í Evrópubanda-
Iagslöndunum (CCBE).
Samþykktir, siðareglur og gjaldskrá L.M.F.Í.
Fyrir fundinn voru lagðar fram tillögur til breytinga á samþykktum félagsins,
þ.e. 1. mgr. 4. gr., og tillaga um að heimila stjórn félagsins að sækja um
undanþágu fyrir gjaldskrá L.M.F.Í. til Samkeppnisráðs í samræmi við framlagða
tillögu að nýrri gjaldskrá.
Formaður gerði grein fyrir tillögu urn breytingu á 1. mgr. 4. gr. samþykkta
L.M.F.I., en samkvæmt henni yrðu felld brott orðin „... og fylgja sömu reglum
um borgun fyrir störf sín.“ Nefndi hann í því sambandi álit nefndar þriggja
lögmanna, sem kannaði áhrif samkeppnislaga á samþykktir, siðareglur og
gjaldskrá L.M.F.Í. Niðurstöður nefndarinnar, sem dreift var með framhaldsað-
alfundarboði, voru þær að breyta þyrfti samþykktum félagsins, nánar tiltekið 1.
mgr. 4. gr., til þess að samþykktirnar samrýmdust samkeppnislögunum. For-
ntaðurinn gerði jafnframt grein fyrir tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir L.M.F.Í. og
hvers vegna sækja ætti um undanþágu. Nefndi hann sem dæmi að koma ætti í veg
fyrir að skuldari yrði ofurseldur ákvörðun innheimtumanns (t.d. lögmanns) um
þóknun fyrir innheimtuna. í slíkum tilvikum væri ekki um samkeppnissjónarmið
að ræða. Pá væri það nauðsynlegt að hafa Ieiðbeinandi reglur fyrir dómstóla og
stjórnvöld, þegar þessir aðilar ákvörðuðu þóknun lögmanna úr hendi gagnaðila,
m.a. vegna samræmingarsjónarmiða innan einstakra embætta og milli embætta.
Engar umræður urðu um tillögurnar og voru báðar samþykktar með öllum
greiddum atkvæðum.
Aðildarumsókn L.M.F.Í. að CCBE.
Fyrirfundinn var lögð eftirfarandi tillaga af hálfu stjórnar L.M.F.Í.: „Fram-
haldsaðalfundur Lögmannafélags íslands haldinn á Holiday Inn. þriðjudaginn
29. júní 1993, samþykkir að heimila stjórn félagsins að staðfesta áheyrnaraðild
L.M.F.Í. að Ráði lögmannafélaga í Evrópubandalaginu (CCBE). Fullgild aðild
er háð samþykki félagsfundar L.M.F.Í.“
178