Tímarit lögfræðinga - 01.11.1993, Qupperneq 49
RIDDARINN SJÓNUMHRYGGI
Björn Þ. Guðmundsson prófessor sendir ritstjórninni tóninn í grein í 4. hefti
42. árgangs tímaritsins á bls. 279. Ritstjórnin er Birni þakklát fyrir að hafa tekið
áskorun hennar í ritstjórnargrein um mál og lög í 3. hefti 1992 um að leggja orð í
belg og játar á sig að eiga skammir skyldar. Til að halda umræðunni áfram vill
hún þó malda í móinn.
í ritstjórnargreininni hafði myndun orðsins stjórnsýsluhafi verið gagnrýnd og
rann þá Birni blóðið til skyldunnar. Hann leitaði rakleitt til yfirvaldsins, ritstjóra
Orðabókar Háskólans. Meginatriðið í ritstjórnargreininni var að lögum yrði
ekki komið yfir mál og að stjórnvöld hvorki gætu né ættu að reyna að koma
böndum á málið; lög þess væru málvenjan og meginlögskýringargagnið málvit-
undin. Ritstjórnin telur því málið ekki útrætt með úrskurði Orðabókarinnar.
Ritstjóri hennar sér ekkert að myndun orðsins stjórnsýsluhafi. Ritstjórn TL
hafði fundið það að orðinu að það særði málvitund vegna þess að ekki væri hægt
að segja að stjórnvald hefði stjórnsýslu þótt segja mætti að það hefði hana með
höndum. Orðabókarritstjórinn segir dæmi vera um margar samskonar samsetn-
ingar. Hún nefnir þó aðeins orðið handhafi og tvö orð mynduð af því; handhafi
sé sá sem hafi eitthvað í höndum. Eftir bestu vitund ritstjórnar er nafnorðið
handhafi samheiti, ef ekki afkvæmi, danska orðsins ihændehaver-1 fornu máli
var það lýsingarorð -. Orðið táknar í lögfræði rétthafa verðbréfs af tiltekinni
tegund, handhafabréfs (ihændehaverpapir); hann hefur það í höndum, á rétt á
því og á það venjulega. Ein merking sagnarinnar að hafa er að hafa eitthvað í
varnaði sínum. Eignarrétturinn (proprietas) er ekki megineinkenni réttar-
tengsla handhafans og bréfsins heldur eru réttaráhrifin bundin við varnaðinn
(possessio). Þótt rétthafinn eigi ekki bréfið, á hann ráð á því og réttindunum sem
það hljóðar um. Ekki verður sagt að neinn hafi stjórnsýslu eða hafi hana í
höndum eða í varnaði sínum, eða að hann eigi rétt á henni þannig að ekki verður
séð að sýnt hafi verið fram á að orðið stjórnsýsluhafi styðjist við viðurkennda
orðmyndunarvenju.
Ritstjórnin vill gjarna eigaífrekari ritdeilum viðBjörn og býður honum rými í
blaðinu, hvort sem hann vill nota það til að skopast að henni, gera grein fyrir ný-
yrðasmíði sinni, skoðunum á hugtakafræði lögfræðinnar eða rannsóknum á
fræðasviði sínu.
185