Tímarit lögfræðinga - 01.03.2004, Page 107
3.9.3 Gildistími og tímamörk vátryggingar
í vátryggingarskírteini kemur gildistími vátryggingarinnar jafnan fram. Slík
ákvæði falla yfirleitt utan gildissviðs þeirra ófrávíkjanlegu reglna VSL sem hér
eru til skoðunar.198 Félaginu er frjálst að ákvarða gildistíma tryggingarinnar og
það verður laust úr ábyrgð þegar gildistími tryggingarinnar rennur út, án tillits
til huglægrar afstöðu vátryggðs eða vátryggingartaka. Vátryggður gæti til dæm-
is ekki krafist þess að gildistími ferðatryggingar hans framlengdist þar sem
hann hefði verið lengur á ferðalagi erlendis en til stóð, þrátt fyrir að það væri af
ástæðum sem honum yrði ekki um kennt.199
Þá verður einnig talið að ákvæði sem kveða á um að tryggingin gildi aðeins
á tilteknu tímabili, tilteknum árstíma eða tíma dags, feli í sér hlutlæga takmörk-
un á ábyrgð félagsins.
Dómur Hæstaréttar íslands 10. október 2002 í málinu nr. 118/2002
I skilmálum sjúkratryggingar var ákvæði þess efnis að vátryggingin tæki ekki til
versnandi heilsufarsástæðna sem rekja mætti til þess tímabils þegar vátryggingin var
úr gildi. I dóminum var litið svo á að þar væri um að ræða hlutlæga ábyrgðartak-
mörkun á gildissviði vátryggingarinnar sem ekki bryti gegn ákvæðum laga nr.
20/1954 um vátryggingarsamninga. Var félagið í framhaldi af því sýknað af kröfu um
greiðslu vátryggingarbóta vegna afleiðinga þess að heilsu vátryggðs hrakaði eftir að
vátryggingin féll úr gildi.
H 1949 UO200
Vátryggð flugvél skemmdist í lendingu. í skilmálum vátryggingarinnar sagði að vá-
tryggingin tæki ekki til notkunar flugvélarinnar frá því klukkustund eftir sólarlag og
þar til klukkustund eftir sólarupprás. Sannað þótti að flugvélin hefði lent meira en
einni klukkustund eftir sólarlag og þótti vátryggingin því ekki ná til tjónsins.201
Skýring skilmálaákvæða, sem varða upphaf eða lok ábyrgðar félagsins, get-
ur hins vegar verið vátryggðum nokkuð harkaleg.
Dómur Hæstaréttar Danmerkur 29. júní 1998 í málinu nr. II 4/1998 (U 1998:
1380 (HD))
í september 1979 tók A slysatryggingu hjá vátryggingafélaginu F, en tryggingin tók
einnig til nokkurra nánar tilgreindra sjúkdóma, þar á meðal MS (mænusiggs). í skil-
málum tryggingarinnar var kveðið á um að félaginu væri ekki skylt að greiða bætur
vegna sjúkdóma sem hefðu komið upp (opstár) áður en sex vikur væru liðnar frá því
að tryggingin tók gildi samkvæmt vátryggingarskírteini. A hafði verið lögð inn á
sjúkrahús árið 1969 vegna óskilgreindra einkenna í fótum og aftur árið 1974 vegna
198 Schmidt, (1943), bls. 159-160; Sindballe, (1948), bls. 25; Hellner. (1955), bls. 12 og (1965),
bls. 82, NOU 1983:56, bls. 80; Selmer. bls. 195 og Sdrensen, (1990), bls. 213 og áframr
199 Selmer, bls. 195.
200 Rétt er að benda á að atvik þessa máls sem og dómurinn eru frá því fyrir gildistöku VSL.
201 Reifun byggð á DÍV.
101