Ægir - 01.04.1996, Blaðsíða 15
eiga sjómenn ekki flest baráttumál sam-
eiginleg?
„Þaö má segja þaö en þó hafa skip-
stjórnarmenn þá sérstöðu að þeir eru
framkvæmdaaðilar stjórnvalda og út-
gerðanna í fjölmörgum málum. Það
munu vera um 100 laga- og reglugerð-
arbálkar sem t.d. fiskiskipstjóri þarf að
kunna skil á ef hann stundar fjölþættar
veiðar.
Mér fannst það vera tímaskekkja
þegar vélstjórar gengu úr samband-
inu. Mér fyndist eðlilegra að sjá alla
sjómenn saman í virku stéttarsam-
bandi þó félagseiningar yrðu til
áfram. Það verður að vera rúm fyrir
ólíkar skoðanir. Þó sjómenn búi í
raun við einn og sama kjarasamning-
inn að grunni til þá geta skoðanir
þeirra verið ólíkar.
Félagsmálamenn verða ekki til af
sjálfu sér heldur þarf þjálfun til þess og
sú þjálfun fer fram í félögunum þar sem
menn ræða sín mál. Rökræðurnar í
borðsalnum eru ágætar svo langt sem
þær ná en þegar menn fara með þá um-
ræðu fyrst í sitt félag og síðan í stærra
samband með mönnum af öilu landinu
koma saman margar ólíkar skoðanir.
Það er við þessar aðstæður sem menn
læra að hlusta á rök annarra, gefa eftir
og vega og meta og sameina baráttu-
málin í eina stefnumörkun. Það er ekki
alltaf það sem rætt var um í borðsaln-
um," sagði Guðjón Arnar í viðtali við
Ægi.
Veikti það þá stöðu FFSÍ að vélstjór-
arnir skyldu ganga úr því?
„Það eru tvær hliðar á því. Það veikir
sambandið því félagar eru færri en á
hinn bóginn eru nú skipstjórnarmenn
fjölmennari og og stefnumörkunin
verður þá skarpari og oft betri."
Var einhver sérstök ástæða fyrir þess-
um klofningi?
„Vélstjórar töldu sér betur borgið í
sérstöku félagi. Það var málefnalegur
ágreiningur fyrir hendi í máium sem
varöa alla sjómenn. Vélstjórar og for-
maður þeirra Helgi Laxdal hafa oftast
nær í gegnum tíðina mælt með kvóta-
kerfinu sem skipstjórnarmenn hafa ver-
ið mótfallnir eins og það er í fram-
kvæmd."
Kvótakerfið andstætt
hagsmunum sjómanna
Hverjir eru helstu gallar á kvótakerf-
inu að mati skipstjórnarmanna?
„Kvótakerfið eins og það er í fram-
kvæmd er andstætt hagsmunum sjó-
manna. Það nægir að nefna kvótabrask-
iö með leigukvóta. Þessi mál hafa klofið
þessar stéttir og veikja baráttu samtak-
anna mjög mikið. Menn eru settir í þá
aðstöðu að vilji þeir ekki taka þátt í
kvótakaupum þá missa þeir plássið.
Þetta er afleiðing af því stjórnkerfi sem
komið var á."
Gekk ekki dómur í máli af þessu tagi
nýlega sem staðfesti málflutning sjó-
manna?
„Dómurinn er ákveðinn sigur en við
stöndum frammi fyrir því að fjöldi okk-
ar manna treystir sér ekki tii að fara
með svona mál fyrir dóm. Við fáum
fjölda mála sem auðvelt væri að leggja í
dóm en stranda á því að viðkomandi
vill ekki kæra útgerðina því það myndi
kosta hann plássið. Þetta er hinn kaldi
raunveruleiki og þess vegna skiptir þessi
dómur ekki eins miklu máli og ella
væri."
Kvótabraskið grasserar
Nú hafa sjómannasamtökin í raun
farið í tvö verkföll vegna þessa máls,
sett á fót úrskurðarnefnd og dómur hef-
ur gengið. Hefur ekkert dregið úr því að
sjómenn taki þátt í kvótakaupum?
„Ég held að það hafi ekki dregið
nógu mikið úr þessu. Það er staðreynd
að nú grasserar þetta sem aldrei fyrr. Það
er ljóst að allir vertíðarbátar em komnir
á leigukvóta fyrir Iöngu í þessari miklu
þorskveiði. Menn eru að leigja kvótann
á 90-100 krónur og borga sjómönnum
40-50 krónur fyrir kílóið. Markaðsverð
á þorski er 75-80 krónur. Það sjá allir
hvers konar vitleysa þetta er.
Við settum á fót úrskurðarnefnd sem
hefur tekið fyrir nokkur mál en þar
gilda sömu lögmál. Við heyrum hótanir
um að láti menn mál ganga til nefndar-
innar þá muni það kosta þá plássið eða
skipunum verði einfaldlega lagt.
Nefndin hefur lokið þeim málum
sem til hennar hafa komið en þau eru
aðeins 20-30 talsins sem er bara topp-
„Kvótakerfið eins og það
er í framkvœmd er and-
stœtt hagsmunum sjó-
manna. Það nœgir að
nefna kvótabraskið með
leigukvóta. Þessi mál
hafa klofið þessar stéttir
og veikja baráttu sam-
takanna mjög mikið.
Menn eru settir í þá að-
stöðu að vilji þeir ekki
taka þátt í kvótakaup-
um þá missa þeir pláss-
ið. Þetta er afeiðing af
því stjórnkerfi sem kom-
ið var á."
urinn á ísjakanum. Ég tel líklegt að til-
fellin skipti hundruðum sem nefndin
ætti að láta til sín taka.
Það er skýrt lagaákvæði sem segir að
algerlega óheimilt sé að draga leigu eða
kaup á aflaheimildum frá kaupi sjó-
manna og umræddur dómur byggir á
þeim. Þrátt fyrir þetta erum viö í vand-
ræðum því við getum ekki rekið mál
fyrir dómi nema einhver vilji kæra.
Við töldum að útgerðarmenn vildu
taka á þessum málum í alvöru þegar
nefndin var sett upp. Þeir segja að leiga
á kvóta sé orðin tóm vitleysa og við
erum þeim sannarlega sammála. Samt
er það svo að leiga rækjukvóta hefur tí-
faldast á 2-3 árum. í dag eru menn
stundum að greiða meira í leigu á kvóta
en sjómennirnir fá."
Eruð þið tilbúnir til þess aö fara í
þriðja verkfallið til þess að útrýma
kvótabraski?
„Ég get ekki svarað því. Það verða sjó-
ÆGIR 1 5