Ægir - 01.04.1996, Page 19
Sækjum fram í vökvakerfum
segir Asmundur Guðnason hjá
Bræðrunum Ormsson
„Sterkasta ímynd fyrirtækisins meðal almennings er tengd þvottavélum
og heimilistækjum en við fáumst auðvitað við margt annað og þjónusta við
skipaflotann er traustur og vaxandi þáttur í því,“ sagði Ásmundur Guðna-
son, verslunarstjóri hjá Bræðrunum Ormsson, í samtali við Ægi.
Ásmundur Guðnason deildarstjóri í Bosch
hjá Brœðrunum Ormsson og Sveinbjörn
Sveinbjömsson verslunarstjóri í Bosch.
„Helsti þátturinn er sá aö við rekum
dísilverkstæði, hið fullkomnasta hér á ís-
landi. Þar er stööugt bætt við tækjum og
fylgst með nýjustu tækni til þess að halda
þeirri stöðu."
Þar er gert við olíuverk og spíssa og yf-
irfarið og stillt ailt sem þarf. Þó Bosch
selji ekki heilar vélar hefur framleiðsla
einstakra hluta í olíuverk og olíukerfi ver-
ið ríkur þáttur í starfseminni.
„Við förum um borð í skipin og að-
stoðum við viðgerðir eftir því sem þarf en
það getur líka þurft að koma með hluti
úr kerfunum hingað á verkstæðið og
stilla þá. Olíuverkið er hjarta vélarinnar
og það þarf að stiiia reglulega eftir kúnst-
arinnar reglum," segir Ásmundur.
Tveir starfsmenn hjá Ormsson eru sér-
hæfðir í slíkum viðgerðum og stillingum
og fást við lítið annað, enda dísilvélar í
öllum fiskiskipaflotanum frá hinum
smæstu til hinna stærstu með örfáum
undantekningum og allar dísilvélar eru í
grófum dráttum eins.
Viðhaldsþörf er mismunandi en al-
gengt mun að taka þurfi upp spíssa og
hreinsa þá eftir 2000-3000 vinnustundir.
„Vélarnar í hraðgengum fiskibátum
eru að vinna undir miklu álagi og þurfa
gott viðhald og við höfum séð mikla
aukningu í því."
Vökvakerfi
- nýjung hjá Ormsson
Að sögn Ásmundar ætlar fyrirtækið
enn að bæta þjónustuna við fiskiskipa-
flotann og bjóða í auknum mæli vara-
hluti, viðhald, þjónustu og stillingu á
vökvakerfum sem stöðugt verða stærri,
umfangsmeiri og flóknari um borð í
smærri skipum og stærri. Mikill fjöldi
hluta í stýrikerfum um borð í t.d. togur-
um er frá Bosch og það á sér þá skýringu
að Bosch er sterkt merki á norskum
markaði en þar er stór hluti flotans smíð-
aður.
„Við höfum sinnt slíkum verkefnum
eftir pöntun fram til þessa en nú verður
hægt að fá alla varahluti, loka, ventla og
dælur frá Bosch. Þetta er þjónusta sem er
eftirspurn eftir og við höfum lagt áherslu
á hraðþjónustu í varahlutapöntunum og
getum í mörgum tilvikum útvegað hluti
frá Þýskalandi á einum degi."
Ásmundur sagði að uppbygging lagers
væri þegar hafin og í byrjun apríl ætti al-
hliða lína að liggja fyrir á hverjum tíma
og slíkt væri mikill kostur fyrir útgerðar-
menn því tíminn er peningar í þeirri at-
vinnugrein ekki síður en í öðrum.
„Vökvakerfi geta verið bæði einföld og
flókin og það nýjasta í þeim sem við sjá-
um eru tölvustýrð kerfi í vinnuvélum
sem nánast hugsa fyrir stjórnandann."
Handverkfæri og fylgihlutir
Bosch er stærsti framleiðandi heimsins
í handverkfærum og fylgihlutum og það
er vaxandi markaður í flotanum fyrir
slíkt.
„Vélstjórar þurfa alltaf góð verkfæri til
þess að sinna viðhaldi og viðgerðum en
eftir því sem búnaður eykst um borð í
skipunum, eins og t.d. vinnsluskipunum,
þá þarf að vera til meira af verkfærum tii
ólíkra nota."
Ásmundur benti einnig á að um borð í
frystiskipum er mikið af fiskvinnsluvél-
um og færiböndum sem áður voru ekki
úti á sjó. Þessir hlutir eru allir undir
miklu álagi og því er enn mikilvægara en
áður að hægt sé að sinna öllu algengu
viðhaldi úti á sjó og það verður ekki gert
nema góð verkfæri séu til staðar þegar á
þarf að halda.
Umhverfismál á oddinn
Bosch hefur verið í fararbroddi þeirra
fyrirtækja í Þýskalandi sem láta sig um-
hverfið miklu varða og taka t.d. við not-
uðum handverkfærum og þau eru end-
urunnin á margvíslegan hátt. Það eru
smíðaðir upptakarar, vasahnífar og fieira
úr gömlum borvélum svo eitthvað sé
nefnt.
„Sú stillitækni sem við bjóðum upp á
frá Bosch hefur einnig ákveðna umhverf-
isvernd að leiðarljósi. Áhyggjur manna af
koltvísýringsmengum vaxa stöðugt.og ís-
land er orðið aðili að alþjóðlegum samn-
ingum um að draga úr slíkri mengun.
Fiskiskipaflotinn er stærsti mengunar-
valdurinn þegar útblástur er annars vegar
og ein leiðin til þess að draga úr þessari
mengun og nýta eldsneytið betur og þar
með spara fé, er að sjá til þess að olíu-
verkið sé alltaf í topplagi."
Fyrir 110 árum
Árið 1886 opnaði Robert Bosch verk-
stæði fyrir fíngerða vélavinnu og raflagn-
ir í Stuttgart í Þýskalandi. Þar eru enn
höfuðstöðvar Bosch samsteypunnar sem
er risavaxið alþjóðafyrirtæki sem veltir
tugum milljóna marka á ári.
Umboðsmaður Bosch á ísiandi eru
Bræðurnir Ormsson, sem margir þekkja,
en 1922 stofnaði Eiríkur Ormsson verk-
stæði til rafvéla- og mæiaviðgerða og árið
eftir gekk Jón bróðir hans til liös við fyrir-
tækið.
Nú starfa 42 starfsmenn í átta deildum
hjá Bræðrunum Ormsson. □
ÆGIR 19