Ægir - 01.04.1996, Síða 37
botngeymum fyrir ferskvatn og brennsluolíu; vélarúm með
frystivélarými s.b.-megin og dælu- og skilvindurými b.b,-
megin, og botngeymum í síðum fyrir brennsluolíu; og aft-
ast skutgeyma fyrir brennsluolíu ásamt sjókjölfestugeymi
aftast.
Nebra þilfar: Fremst á neðra þilfari er stafnhylki (þurr-
geymir), þá umbúðageymsla ásamt keðjukössum og þar fyr-
ir aftan vinnuþilfar (fiskvinnslurými) með fiskmóttöku aft-
ast. Aftan við fiskmóttöku er stýrisvélarrými. S.b.-megin við
fiskmóttöku og stýrisvélarrými eru geymslu- og dælurými
en b.b.-megin verkstæði og vélgæsluklefi.
Efra þilfar: Fremst á efra þilfari er geymsla og íbúðarými,
en þar fyrir aftan er togþilfar skipsins. Á togþilfari eru þil-
farshús í síðum, þ.e. geymslur, verkstæði og stigahús.
Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist
hún í tvær bobbingarennur sem ná fram að íbúðarými og
liggja aftur eftir togþilfari um leiðihjól. Yfir afturbrún skut-
rennu eru toggálgar með palli, en yfir frambrún skutrennu
er pokamastur.
Bakkaþilfar: Bakkaþilfar er heilt aftur undir skipsmiðju,
en framlengist meðfram síðum aftur að þilfarshúsum. Aft-
antil á bakkaþilfari er yfirbygging, sem fremst nær yfir
breidd skips en framlengist meðfram síöum aftur af
skipsmiðju. í yfirbyggingu em íbúðir. Framantil á íbúðahæð
er brú (stýrishús) skipsins. Á brúarþaki er ratsjá- og
ljósamastur, og aftan við stýrishús er gilsamastur.
Mesta lengd...................................... 49,95 m
Lengd milli lóðlína.............................. 44,20 m
Breidd (mótuð)................................... 12,30 m
Dýpt að efra þilfari.............................. 7,50 m
Dýpt að neðra þilfari.......................... 5,15 m
Eigin þyngd........................................ 965 t
Særými (djúprista 5,15 m)...................... 1580 t
Burðargeta (djúprista 5,15 m)...................... 615 t
Lestarrými......................................... 550 m3
Brennsluolíugeymar (svartolía)................... 247,7 m3
Brennsluolíugeymar (gasolía)...................... 51,5 m3
Andveltigeymir (gasolía).......................... 42,0 m3
Ferskvatnsgeymar.................................. 28,5 m3
Sjókfjölfestugeymir............................ 19,0 m3
Brúttótonnatala................................ 1040 BT
Rúmlestatala...................................... 641 Brl
Skipaskrámúmer.................................... 2248
Vélabúnaður
Framdrifs- og orkuframleibslukerfi: Aðalvél skipsins er
Wártsila Vasa, sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eft-
irkælingu, sem tengist niðurfærslugír frá Citröen Messian og
ALHLIDA
SKIPAVIÐ-
GERÐIR
S ÞJÓIMUSTA
allt á sama stað
Vélsmiðja
0RMS 0G VÍGLUNDAR sf.
DRAFNAR-SLIPPUR:
Strandgata 82-84 - 220 Hafnarfjörður
Símar: 565 0393 & 565 4880
Fax: 565 5890 - GSM-sími: 892 0883
SMIÐJA, RENNIVERKST.OG SKRIFST.:
Kaplahraun 14-16 - 220 Hafnafjörður
Sími: 555 4199 - Fax: 555 1421
GSM-simar: 892 0895 & 893 6920
ÆGIR 37