Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1996, Qupperneq 39

Ægir - 01.04.1996, Qupperneq 39
FYRIRKOMULAGSTEIKNING Fyrirkomulagsteikning afSindra VE 60 í öllum megindráttum. setningu á búnaði. Blóðgunarkör eru þrjú talsins og eru búin kælingu. Vinnsluvélar eru frá Baader og flokkunar- og tölvu- vigtarkerfi frá Marel. Vinnslustceki: í skipinu eru eftirtalin vinnslutæki: Baader 161 hausunar- og slægingarvél fyrir bolfisk, Baader 189 V flökunarvél fyrir bolfisk, Baader 51 roðflettivél, Baader 424A hausunarvél með innyflasugu fyrir karfa, grálúðu og bolfisk, Marel flokkunarbúnaður, tvær Marel tölvuvogir af gerð CP 9121, bindivél o.fl. Frystitœkjabúnaöur: I skipinu eru fjórir láréttir 15 stöðva plötufrystar frá Jackstone, þrír með plötustærð 1550 x 1120 mm (45 pönnu) og einn með plötustærð 1930 x 1120 mm (60 pönnu). Loft vinnuþilfars er einangrað og klætt með plasthúðuðum krossviði. Fiskilest (frystilest) Lestarrými er um 550 m3 og er búið fyrir frystingu. Síður, loft og framþil eru einangruð með polyurethan og vélarúms- þil með glerul. Lestin er klædd með vatnsþéttum plasthúð- uðum krossviði, en lestargólf með tréklæðningu (plasthúð- uð). Lestin er kæld með kælileiðslum í lofti lestar. í lest er færiband til að flytja afurðir og i tengslum við það þrepalyfta, sem flytur frá vinnsluþilfari. Eitt lestarop er aftast á lest með tilheyrandi losunarlúgu á efra þilfari. Vindubúnaður, losunarbúnaður Almennt: Vindubúnaður skipsins er vökvaknúinn (lágþrýsti- kerfi) frá Sorenam (Norwinch) og er um að ræða tvær togvind- ur, tvær grandaravindur, tvær hífingavindur, pokalosunar- vindu og flotvörpuvindu, auk rafdrifinnar akkerisvindu. Þá er skipiö búið þremur vökvaknúnum (háþrýstikerfi) smávindum, svo og lágþrýstiknúinni kapalvindu og rafdrifnum kapstan. Togvindur: Aftast á togþilfari, s.b.- og b.b.-megin, em tvær tog- vindur (splittvindur) af gerð T2D-23-140, hvor búin einni tromlu og knúin af tveimur þriggja hraða vökvaþrýstimótorum. Tæknilegar stærðir [hvor vindal: Tromlumál................. 406 mmo x 1430 mmexl 400 mm Víramagn á tromlu......... 3000 m af 26 mmo vír Togátak á miðja tromlu.... 11.2 tonn (lægsta þrep) Dráttarhraði á miðja tromlu . 75 m/mín (lægsta þrep) Vökvaþrýstimótorar........ 2 x Norwinch MH 380 Afköst mótora............. 2 x 94 hö Þrýstingur................ 50 bar Olíustreymi............... 2 x 1195 l/mín Grandaravindur: Aftast á togþilfari, s.b. og b.b.-megin, eru tvær grandaravindur af gerö LV8, hvor búin einni tromlu (419 mmo x 1150 mmo x 800 mm) og knúin af MH 380 mót- or, togátak vindu á tóma tromlu er 10.6 tonn og tilsvarandi dráttarhraði 85 m/mín. Hífingarvindur: Aftast á heiiu bakkaþilfari eru tvær hífingar- vindur af gerð GV20, hvor búin einni tromlu og knúin af MH 540 mótor, togátak vindu á tóma tormlu er 18.3 tonn og til- svarandi dráttarhraði 48 m/mín. Pokalosunarvinda: Aftast á heilu bakkaþilfari er pokalosun- arvinda af gerð GV 20, búin einni tromlu og knúin af MH ÆGIR 39

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.