Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1996, Page 44

Ægir - 01.04.1996, Page 44
Bjarni Tryggvason: Humartroll og nætur á Hornafirði „Við reynum að veita eins alhliða þjónustu og hægt er en ætli við séum ekki einna helst sérfræðingar í humartrollum og nótum," sagði Bjarni Tryggvason hjá Veiðarfæragerð Hornafjarðar í sam- tali við Ægi. Það er faðir Bjarna, Tryggvi Vilmundarson, sem starf- rækir netaverkstæðið og þar vinna að jafnaði 10 manns. Vegna sérstööu Hornafjarðar er mest aö gera viö síldarnætur og humartroll en kolatroll, snurvoðir, fiskitroll og víravinna eru algeng viöfangsefni. Veiðarfærageröin tekur nema í faginu og þó enginn sé þar í námi núna sagði Bjarni það vera tímabundið. Starfsmenn á verkstæðinu eru flestir með margra ára starfsreynslu bæði á sjó og landi. keppninni, annars væri staðan ekki slík sem hún er nú." Er biðröö eftir að komast á náms- samning í netagerð? „Það hefur verið það undanfarið. Það hefur verið mikið að gera í Gloría flottrollum og við reynum að vera með nokkra nema á hverjum tíma. Síðustu ár hefur verið ásókn í það. Þetta hefur ekki alltaf verið svo en hefur gengið í bylgjum þann tíma sem ég hef unnið hérna." Námið í þróun „Hins vegar er námið og kennslan orðin mikið breytt frá því sem áður var. Áður lærðu nemar allt á verkstæðunum en sáralítið um netagerð í Iðnskólan- um. Það varð bylting þegar var farið að halda námskeið fyrir nema og starfs- menn í netagerö. Svo varð breyting til batnaðar fyrir fimm árum þegar faglegri braut fyrir netargerðarnema var komið á fót við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og þangað fara allir nemar af landinu og ljúka þar síðasta áfanga skólanámsins. Þetta hefur gefiö mjög góða raun og er eitt það besta sem hefur verið gert fyrir greinina frá upphafi en þessi mál eru öll í endurskoöun. Það starfa nefndir sem eru að endurskoða bæði námsefnið og námið sjálft." Netagerðarmenn tilheyra nú Félagi járniðnaöarmanna en áður var þetta sjálfstætt félag sem hét Nót, Sveinafélag netagerðarmanna, og í því voru um 60 félagar. Guðmundur segir menn giska á að 250-300 manns starfi við netagerð í landinu. Byrjunarlaun útskrifaðra neta- gerðarmanna eru á bilinu 60-90 þúsund á mánuði eftir framboði og eftirspurn. Netagerð er, að mati Guðmundar, karl- mannafag að 95%. Tölvuvæddur trollhermir í Hampiðjunni sitja lærðir netagerð- armenn og teikna og hanna troll og veiöarfæri í tölvu og nota til þess Autocad teikniforrit. Hefur tölvuvæðing leitt af sér breytt vinnubrögö í neta- gerð? „Þetta er að síast inn. Landssamtök veiðarfæragerða héldu á dögunum námskeið í notkun töflureiknis við út- reikning á veiðarfærum. Þetta fékk góð- ar undirtektir enda eru þessi öflugu for- rit frábær hjálpartæki og opna nýjan heim fyrir þá sem hafa reiknað upp á gamla móðinn í áratugi. Ég vil spá því aö nýjar kynslóðir netagerðarmanna muni nýta sér tölvu- tæknina miklu meira en við erum að gera nú. Hampiðjan og Háskólinn hafa haft samstarf um gerð svokallaðs troll- hermis sem er tölvuforrit sem reiknar út ýmsa þætti í sambandi við togkraft, vél- arstærð, skipsstærð og fleiri þætti. Mín framtíðarsýn er að slíkur hermir verði hluti af hjálparbúnaði skipstjórans sem geti þá látið tölvuna segja sér hvaða áhrif ýmsar breytingar hafa á veiðarfær- in, til að hámarka afrakstur veiðanna." Enginn höfundarréttur Höfundarréttur í netagerð er lítils metinn og sá sem þróar þekkt veiðar- færi og kemur fram með breytta gerð lendir yfirleitt í því að „þróun" hans er stæld og tekin upp af öörum án frekari málalenginga. Er hægt að gera eitthvað í þessu? „Það er ekki til neitt sem heitir höf- undarréttur í netagerð. Þetta er óneitan- lega galli. Við höfum séð teikningar ætt- aðar frá okkur hinum megin á hnettin- um. Þaö er búið að kopíera Gloríutroll austur í Rússlandi. Ég veit ekki um neinn sem hefur fengið einkarétt á neinu veiðarfæri en þó mætti nefna sig- urnaglann og smáfiskaskiljuna en þetta eru hvort tveggja hlutir sem eru hluti af veiðarfærum. Hampiðjan hefur ekki gert neitt til að vernda sig gegn slíkum hlutum. Það eina sem við getum gert er að sannfæra menn um að við gerum hlutina vel og sérhæfum okkar þjónustu þannig að orðstír okkar tryggi það aö menn kaupi frekar okkar framleiðslu en eftirlíking- ar." „Þróunin gengur í þá átt að gera veiðarfærin liprari, sterkari og fisknari svo skipin geti notað þau við erfiðari aðstæður og sinnt veiðum með meira krafti." 44 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.