Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1997, Page 41

Ægir - 01.12.1997, Page 41
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Sigmar Þröstnr Óskarsson, handbolta- markvörður, er liðtœkur í fleiru en verja fóst skot. Hann var á tímabili starfsmaður Netagerðarinnar Ingólfs. Aðspurður hversu stór hluti af vinnu fyrirtækisins snúist um uppsetn- ingar á nýjum nótum segir hann að það sé um helmingur. Loðnunætur Iifi ekki lengur en fimm ár þannig að end- urnýjunin sé nokkuð ör. Þróun veiðarfæra ör hér á landi Birkir telur að þróunin í veiðarfær- um hér landi sé hröð og raunar njóti greinin góðs af því hversu nýjunga- gjarnir og opnir íslendingar eru í hugs- un. Fyrir fjórum árum var til dæmis leitað til Netagerðarinnar Ingólfs með þá fyrirspurn hvort mögulegt væri að þróa hentugt flottroll fyrir síldveiðar. „Við sögðum einfaldlega að þetta hljóti að vera gerlegt og upp úr því er komið síldarflottroll sem menn hafa verið að ná ágætum árangri með á síld- armiðunum. Enda sáum við engar for- sendur til þess að við gætum ekki veitt síld í flottroll ef að írarnir eru að gera það," segir Birkir. „Ég held að við stöndum okkur ágætlega íslendingar í því að þróa veið- arfæri, ef borið er saman við nágranna- þjóðir okkar. Við erum ekkert að eyða of miklum tíma í vangaveltur heldur reynum að gera breytingar eftir því Glaðbeittir starfsmenn Netagerðarinnar Ingólfs á fimmtugasta starfsári fyrirtœkisins. Það er til marks um verkefnastöðuna að varla hefur unnist tími til að gera dagamun vegna 50 ára afmcelisins. Myndir: Fréttir/Vestmannaeyjum sem reynslan sýnir af veiðunum úti á sjó og þannig fáum við betri og betri veiðarfæri. Hér hjá Netagerðinni Ingólfi leggj- um við sjálfir mikla áherslu á þróun veiðarfæra og sú vinna fer þannig fram að byrjað er á teikningum á borði og síðan eru teikningar færðar yfir í tölvu og reiknuð út hlutföll og þá hefst fram- leiðslan sem gjarnan er í mjög nánu samstarfi við útgerðirnar og þá sem nota eiga veiðarfærin. Gjarnan kemur svona lagað líka til af því að menn hringja í okkur, eins og t.d. með flott- trollið fyrir síldina, og bera undir okk- ur hugmyndir sem síðan geta orðið að veruleika," segir Birkir. Möguleikarnir í framtíðinni Netagerðin Ingólfur hefur verið í samstarfi við erlenda framleiðendur veiðarfæra á undanförnum árum, til að mynda á írlandi, og greinilegt er á Birki að haldið verður áfram á þeirri braut. Uppistaðan í rekstrinum mun engu að síður verða í þjónustu á inn- anlandsmarkaði og það segir Birkir að opnun útibúanna á Þórshöfn og Fá- skrúðsfirði undirstriki. „Það skiptir líka miklu máli þegar talað er um möguleika í þróun og ný- sköpun að fyrirtækin séu nægilega sterk til að takast á við slíkt. Við viljum gjarnan halda áfram á þeirri braut og þess vegna erum við að stíga þessi skref sem breikka undirstöður fyrirtækisins og gera það sterkara fyrir verkefni framtíðarinnar," segir Birkir Agnars- son. Grunnur lagður að atvinnumanni í fót- bolta. Hermann Hreiðarsson, núverandi atvinnumaður í ensku knattspyrnunni ger- ir við nót. mm 41

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.