Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1998, Síða 32

Ægir - 01.01.1998, Síða 32
„Mikil ónýtt orka í kælivatni skipavélanna66 - segir Eiríkur Stefánsson hjá Rafhitun sf í Hafnarfirði Hjá fyrirtœkinu Rafiiitun sf. í Hafnarfirði eru framleiddir raf- hitarar fyrir hús og skip og segir Ei- ríkur Stefánsson, rafvirkjameistari og annar aðaleigandi fyrirtœkisins, að full ástœða sé fyrir marga útgerðar- aðila að velta fyrir sér hvort ekki sé hasgt að ná hagstœðari orkunýtingu fyrir kyndingu og neysluvatn um borð t skipunum. Flest skip í flotanum brenni enti olíu til að liita upp tieyslu- og kyndingarvatn en með kœlivatni afljósa- og aðalvélum megi ná fram miklutn orkusparnaði og heilsusamlegri kyndingu í íbúðum skipverja. Eigendur Rafhitunar sf. eru raf- virkjameistararnir Eiríkur Stefánsson og Randver Ármannsson. Báðir eru þeir fyrrverandi starfsmenn Raftækja- verksmiðjunnar sem starfaði í eina tíð í Hafnarfirði en Rafhitun varð til í kjölfar þess að það fyrirtæki lagði upp laupana. Eiríkur segir meginviðfangs- efni Rafhitunar að framleiða rafhitara fyrir hús og skip og einnig að fram- leiða allar gerðir rafhitalda (elementa). Auk þess er Rafhitun sf. með fram- ieiðslu og sölu á ýmis konar fylgibún- aði sem tilheyrir rafhitun og til að mynda framleiðir Rafhitun sf. olíu- hitara fyrir skip en þeir eru notaðir til að hita svartolíu upp áður en hún fer inn á vélarnar. Meðal stærri viðskipta- vina fyrirtækisins á sviði rafhitunar má nefna Álverið í Straumsvík. Á tímum þegar mikil umræða er um olíunotkun skipa vaknar sú spurning hvort hægt sé að hagræða í orkunotk- uninni um borð. Eiríkur telur svo vera og bendir á að í rafhiturum á borð við þá sem Rafhitun sf. framleiðir megi Eiríkur Stefánson vinnur við samsetningu á rafhitara. 32 AGiIR Randver Ármannsson við beygjuvélina þar sem beygt er efrti í rafhitöid, sem margir þekkja betur undir nafninu „element". auðveldlega tengja hringrás við kæli- vatnskerfi ljósa- og aðalvélanna þannig að orkan í kælivatninu sé not- uð til að hita upp neyslu- og ofnavatn. Einnig eru rafhitararnir búnir hitöldum (elementum) til upphitunar á íbúðum og vélum við landtengingu. „Rafhitararnir eru fáanlegir í mörg- um stærðum og þeir stærstu með bæði hitaspírala fyrir neysluvatn og ofna- vatn. Við höfum samvinnu við fyrir- tækið Hagstál ehf. hér í Hafnarfirði um rafhitarasmíðina, þeir sjá um stál- smíðina en við um alla rafmagns- vinnu og samsetningu þannig að þetta er atvinnuskapandi framleiðsla. Það eykst jöfnum höndum að við seljum þennan búnað í skip en okkur þykir skrýtið hversu lítið menn eru ennþá farnir að huga að sparnaði í kynding- unni um borð en það er ljóst að menn hafa þegar mikla ónýtta orku í kæli- vatni vélanna sem hægt er að nýta mun betur. Þeir sem hafa keypt raf- hitara hjá okkur og tengt á þennan hátt hringrás fyrir kælivatnið eru mjög ánægðir með árangurinn og ég sé ekki annað en þarna geti verið töluverður peningalegur sparnaður. í þessum þætti teljum við að sé mikið verk að vinna því flest skipin í flotanum eru enn að nota olíu í sína kyndingu," segir Eiríkur.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.