Ægir - 01.03.1998, Page 17
' ^ Tækni og fiskvinnsla
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
„Pönnuþrœllinn" er vélbúnaður sem á
sjálfvirkan hátt hleður og afhleður
plötufrysta í frystihúsum. Störfin við
pönnumar hafa fram til þessa ekki þótt
þau léttustu í frystingunni en með nýja
búnaðinum gjörbreytast þau. Hér er
„pönnuþrœll" í fiskiðjuveri
Síldarvinnslunnar í fullri notkun. Þessi
tækjabúnaður er afurð sem varð til í
tengslum við hið nýja hús
Síldarvinnslunnar.
Mynd: JÓH
TTvað erfiðustu störfin í hefð-
J. A. bundnum frystihúsum er tœkja-
vinnan, þ.e. að setja frystipönnur í
frystitœki, taka þœr lit og slá úr. Nií
er fyrirtcekið Formax í Reykjavtk búið
að þróa, í samvinnu við fleiri aðila,
svokaUaðan „Pönnuþrœl", en þetta
er sjálfvirkur búnaður sem sér um að
mata frystitœkin og taka úr og á ein-
faldan hátt er frystiblokkunum slegið
úr pönnunum án þess að manns-
höndin þurfi að konta að tneð
nokkrum átökum.
Búnaðurinn var hannaður síðla árs
1996 í tengslum við byggingu hins
nýja fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar hf.
í Neskaupstað en þar er á ferðinni al-
sjálfvirkur búnaður. Nú nýverið var
svo settur upp hálfsjálfvirkur búnaður
hjá ísfélaginu í Vestmannaeyjum þar
sem byggt er á sömu hugmynd. í
loðnufrystingunni nú í febrúar fóru
afköstin í frystingunni ekki niður fyrir
100 tonn á hverri vakt, en höfðu orðið
mest 85 tonn áður. Það er því óhætt
að fullyrða að frystigetan hafi verið
aukin um 20% frá árinu áður, án þess
að frystikerfi hússins hafi verið breytt
á nokkurn hátt. Einungis starfsfólki
hafði verið fækkað.
Hafliði Skúlason, markaðsstjóri hjá
Formax hf. segir „Pönnuþrælinn"
þann hest sem fyrirtækið veðji helst á
um þessar mundir.
Fyrirtœkið Formax vekur verðskuldaða athygli
hérlendis og erlendis fyrir nýjan tœkjabúnað:
„Pönnuþrællinn“
byltingarkennd
nýjung í
frystihúsunum
MGÍR 17