Ægir - 01.03.1998, Side 36
Tækni og fiskvinnsla
Tölvuvœtt skynmat í fiskvinnslu - nýtt Evrópuverkefni:
Samræmt gæðamat
á öllum stigum
Tpyrii nokkrum árum tók Emilía
Jö Martinsdóttir, verkfrœðingur hjá
Rannsóknarstofhun fiskiðnaðarins,
sig til og bjó til skynmatshandbók
þar sem sýndar eru myndir affiski á
mismunandi skemmdarstigi. Með
skynmati er vísað til þess að skynfœr-
in, lykt, bragð og útlit, eru notuð til
þess að ákvarða ástand fisksins.
Menn sem selt hafa og keypt fisk eru
sammála uiti að opinberar matsregl-
ur séu ófullnœgjandi til að kveða upp
hlutlcegt mat og því er það svo að oft
rísa upp deilur milli kaupenda og
seljenda þar sem gœði fisksins hafa
ekki uppfyllt vcentingar. Þegar vara er
seld óséð verður katipandi að treysta
upplýsitigum frá seljanda.
{ handbókinni er lýst skynmatsað-
ferð sem byggir á ástralskri fyrirmynd
og nefnist QIM (Quality Index Met-
hod) og metur hún fisk á eins hlutlæg-
an hátt og kostur er með skynmati.
Aðferðin byggir á þrepa- og stigskiptu
mati þar sem matsmaðurinn þarf að
meta marga gæðaþætti og bera þá
saman við staðalþætti sem hann hefur
fyrir framan sig á mynd.
Villa í einum gæðaþætti hefur ekki
afgerandi áhrif á lokaniðurstöðu mats-
ins. Að lokum reiknar matsmaðurinn
út matseinkunn eða gæðastuðul (Qu-
ality Index).
Þrátt fyrir ótvíræða kosti þessarar
aðferðar hefur hún þótt seinleg og
óþægileg fyrir matsmenn. Þeir þurfa
enda að bera saman fjölda mynda við
þann fisk sem verið er að meta, að því
viðbættu að leggja saman gæðaþætt-
ina og reikna
gæðastuðul.
Þrátt fyrir ótví-
ræða yfirburði
þessarar aðferðar
hefur hún ekki
náð almennri út-
breiðslu.
Til þess að
ráða bót á þessu
vandamáli hefur
Tæknival verið
fengið til þess að
hanna hugbún-
að (QimlT) sem
auðveldar matið,
auk þess sem það
verður einfaldara
og áhrifaríkara
en áður. Binda
menn miklar
vonir við þenn-
an hugbúnað og
segja hann bjóða
upp á áður
óþekkta mögu-
leika:
Hægt verður
að flokka fisk og
fiskafurðir miklu
nákvæmar en
Emilía Martinsdóttir, verkfrœðingur hjá Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins, telur að vinna sem nú stendur í þá veru að taka
tölvutœknina í notkun við skynmat á fiski geti leitt af sér
samevrópskt gœðaeftirlit.
áður, t.d. fyrir þá
kaupendur sem
gera mestar kröf-
ur og greiða hæsta verð.
Hægt verður að miðla upplýsingum
rafrænt yfir net og gefa þannig hugs-
anlegum kaupendum betri upplýsing-
ar um gæði fisksins. Ein helsta for-
senda netverslunar er gagnkvæmt
traust milli kaupenda og seljenda.
Rekjanleiki veður betri enda verða
til staðar nákvæmari upplýsingar um
gæði fisksins.
Hægt verður að lesa upplýsingar
um gæði fisksins inn í vinnslueftirlit
36 MCm