Ægir - 01.05.1998, Blaðsíða 22
Fiskvinnsla og menntun:
„Nauðsynlegt að
líta á fískvinnslu-
störf sem fagstörf4
- segir Gunnlaugur Sighvatsson, framkvœmdastjóri Hólmadrangs hf. á Hólmavík
£fokkur á að takast að viðlialda, byggja upp og nýta þattn mannauð sem
býr innatt sjávarútvegs þá þarfað nástgott samstarf milli fyrirtœkja í
sjávarútvegi, menntastofnana og hagsmunasamtaka launafólks. Fyrirtœkin
þurfa að skipuleggja störfbetur, þannig að inannauðurinn nýtist sem best en
þau verða líka að skilgreina þörfina fyrir þekkingu betur, leita sterkar eftir
starfsfólki nieð rétta þekkingu og setja meiri kröfur um þekkingu og hœfni fólks
sent ráðið er til starfa ígreininni. Fyrirtœkin og hagsmunasamtök launafólks
þurfa í samvinnu að veita starfsfólki t auknum mœli aðgatig að nýrri þekkingu
nieð endurmenntun og hagsmunasamtökin þurfa að breyta áherslum í sintti
starfsemi og huga jafnt að gœðum þess vinnuafls sem fram er boðið og þess
endurgjalds sem er krafist," segir Gunnlaugur Sighvatsson, framkvœmdastjóri
Hólmadrangs hf. á Hólmavtk, í viðtali við Ægi utn menntun og þekkingarþörf í
sjávarútvegi. Gunnlaugur er eiitn afþeim sem útskrifast hafa á undanfómum
árum í sjávarútvegsfrœðum frá Háskólanum á Aktireyri og ígegnum nániið,
sem og stjórnun á sjávanívegsyrirtœki á borð við Hólmadrang, hefur hatin séð
með eigin augutn hver þörffyrirtœkja ígreininni er fyrir menntað starfsfólk.
Gunnlaugur segir að ef litið sé til
sjávarútvegs á íslandi þá megi auð-
veldlega sjá breytingar í umhverfi
greinarinnar og innan hennar sem
leitt hafi til breytinga á þekkingarþörf
sjávarútvegsfyrirtækjanna.
„Helstu breytingar í umhverfi þeirra
á undanförnum árum hafa leitt til
breyttrar þarfar hvað varðar verkvit.
Þar koma til tæknivæðing veiða og
vinnslu, áhersla á gæðamál og áhersla
á umhverfismál. Skip hafa tækni-
væðst, bæði hvað varðar siglinga- og
fiskileitartæki, vél- og togbúnað og
vinnslubúnað. Vinnslustöðvar hafa
endurnýjað sinn vinnslubúnað og af-
köst og sjálfvirkni aukist hröðum
skrefum.
Ýmsir þættir menntakerfisins hafa
að mínu mati ekki þróast í takt við
þessar staðreyndir og mér finnst líka
að þekking og skipulag starfa innan
„...íhaldssemi í
menntakerfmu,
í versta falli skortur
á framsýni."
fyrirtækjanna hafi ekki tekið eðlileg-
um breytingum samfara þessu," segir
Gunnlaugur og bendir á að sú hætta
sé fyrir hendi að námsefni og náms-
framboð þróist lítið, þrátt fyrir gjör-
byltingu í störfum. Þar komi til íhalds-
semi í menntakerfinu, eða í versta falli
skortur á framsýni. Þetta leiði til þess
að námið úreldist.
„Hættan á þessu er skiljanlega mest
í tæknitengdu námi, s.s. vélstjórnar-
námi, en hún er einnig fyrir hendi í
menntun til starfa þar sem vinna þarf
með ýmis tæki, s.s. í skipstjórnarnámi
og verkstjórnarnámi.
22 Msm