Ægir - 01.10.1998, Blaðsíða 44
\JM SJÁV^p
Qki/xisniíðaiðiiaðuriiin
Björn Björnsson. Þegar mest var unnu
25-30 manns við verkið.
VST hf. og Arkitektar sf. sáu um
hönnun hússins en eftirlit með verk-
inu hafði Verkfræðistofa Suðurnesja.
„Styttum verktímann"
Stefán vonast til að stærri breytinga-
verkefni verði í boði og til þeirra muni
nýja húsið henta vel. „Ég held samt að
við komum til með að keyra sem mest
af verkefnum í gegnum húsið og fá að
jafnaði styttri verktíma í hverju verki.
Þar með tækist okkur að mæta vilja
viðskiptavinanna um styttri verk-
tíma," segir hann og leggur áherslu á
að nýja húsið sé ekki hugsað fyrir ný-
smíðar, enda leggi Skipasmíðastöð
Njarðvíkur hf. ekki áherslu á nýsmíð-
ar, heldur þvert á móti.
Stefán viðurkennir að með nýja
húsinu sé í mikið ráðist af ekki stærra
fyrirtæki. Á hinn bóginn hafi hlutafé
Horft út úr nýja skipaskýlinu. Hér sést vel
hversu mikil lofthœðin er í húsinu.
verið aukið til að mæta fjármögnun á
verkefninu.
„Skipasmíðaiðnaðurinn er mjög
vinnukrefjandi grein og ef okkur tekst
að nýta betur tímann og jafna verk-
efnunum á allt árið, eins og markmið-
ið er, þá þarf ekki nema um 10% bætta
nýtingu á tíma til að standa undir
þessari fjárfestingu. í því ljósi má sjá
að framkvæmdin á að verða okkur
mjög hagkvæm," segir Stefán.
Heildarhlutafé í Skipasmíðastöð
Njarðvíkur hf. er nú um 124 milljónir
króna og var 50 milljónum af nýju
hlutafé varið til framkvæmda við nýju
mannvirkin.
Málningarverksmiðjan Harpa á
stærsta einstaka hlutinn í fyrirtækinu,
um 12%, en síðan koma Hitaveita
Suðurnesja með um 11%, Reykjanes-
bær með 10%, dótturfyrirtæki ís-
lenskra aðalverktaka hf. með 8%,
Slippfélagið í Reykjavík með 7% og
aðrir hluthafar minna.
Allt til raf hitunar
Framleiðum rafhitara í hús og skip frá
3 kw til 500 kw, allar gerðir rafhitalda
(elementa), hvers konar sérsmíði úr
stáli, neysluvatnskúta o.fl.
rb
RAFHITUN S/F
Kaplahrauni 7a, Box 66, - 222 Hafnarfiröi
Sími 565 3265 - Fax 565 3260
44 mgm